Sigraði Aftureldingu í dramatískum leik
Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss liðið sem var 2 til 3 skrefum á eftir Aftureldingu í öllu sem þeir gerðu. Sóknin var ómarkviss og byggðist eingöngu á einstaklingsframtaki og þrátt fyrir 14 skoruð mörk í fyrri hálfleik þá var sóknarleikurinn slakur. Þá var varnarleikurinn afleitur og lék Afturelding sér að framliggjandi vörn Selfyssinga. Selfoss reyndi […]
Vél Flugfélags Íslands veðurteppt í nótt

Vél Flugfélags Íslands varð veðurteppt í Vestmannaeyjum í nótt. Vélin lenti síðdegis á flugvellinum í Eyjum en þegar fara átti af stað á ný, snjóaði svo duglega að hvorki náðist að hreinsa flugbrautina, né að afísa vélina. Hún var því í Eyjum í nótt og verður flogið síðar í dag til Reykjavíkur, án farþega. (meira…)