Sanngjarn sigur gegn HK

Kvennalið ÍBV í handbolta vann í kvöld góðan sigur á HK í 2. deild Íslandsmótsins en liðin áttust við í Vestmannaeyjum. Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu betur í leiknum, komust í 0:3 en Eyjastúlkur jöfnuðu 6:6 og skiptust liðin á að skora það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Eyjastúlkur voru þó yfir í hálfleik 19:18 í […]
Baugsmálið frá sjónarhorni Sullenberger

Kreppan með spillingu í forgrunni er það sem helst er rætt þar sem tveir eða fleiri hittast. Jón Sullenberger hefur verið ólatur að benda á ýmislegt í kringum það þekkta fyrirtæki, Baug. Hann sendi okkur fjórða myndbandið um það mál allt og þarfnast ekki frekari útskýringa. (meira…)
Hafnarframkvæmdir í Eyjum fyrir 330 milljónir króna

Kostnaður vegna framkvæmda við Binnabryggju og Skáann í Vestmannaeyjum nemur að minnsta kosti 330 milljónum króna án virðisaukaskatts, samkvæmt lauslegri áætlun Siglingastofnunar. (meira…)
Engin hálfkláruð hús í Eyjum

Kreppan hefur haft þau skelfilegu áhrif á höfuðborgarsvæðinu að heilu hverfin standa hálfkláruð og fátt sem bendir til þess að húsin sem þar standi verði kláruð á næstunni. Kreppan hefur hins vegar haft öfug áhrif á byggingariðnaðinn í Vestmannaeyjum því líklega hefur aldrei verið byggt meira en nú. Þannig er verið að byggja tvö verslunar- […]
Eyjamenn byrja á útivelli 10. maí

Drög að dagsetningu leikja í úrvalsdeild karla í knattspyrnu liggur nú fyrir. Samkvæmt drögunum byrja Eyjamenn á útileik sunnudaginn 10. maí þegar þeir sækja Fram heim í Laugardalinn. Fyrsti heimaleikurinn er svo þremur dögum síðar þegar Breiðablik kemur í heimsókn. Íslandsmótinu lýkur svo 26. september en þá leikur ÍBV gegn Keflavík á útivelli. (meira…)
�?tvegsbændafélagið Heimaey styður ákvörðun ráðherra um hvalveiðar

Útvegsbændafélagið Heimaey lýsir fullum stuðningi við ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila veiðar á hrefnu og langreyði. Þá er því fagnað að ákvörðunin skuli gilda í fimm ár líkt og almenn venja er innan Alþjóða hvalveiðiráðsins. Á meðan rannsóknir sýna að stofnanir eru ekki í hættu er ekkert eðlilegra en að þjóð […]
Ríkið lagði 700 milljónir króna í vatnsleiðsluna

Hitaveita Suðurnesja hefur hækkað verð á köldu vatni og verður vatnið í Eyjum á sambærilegu verði og á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Sigurjón I. Ingólfsson, svæðisstjóri HS í Eyjum sagði að lagning nýrrar vatnsleiðslu til Eyja á síðasta ári hefði verið mjög dýr framkvæmd eða nálægt 1,3 milljörðum. (meira…)