Svekkjandi og ósanngjarnt tap

ÍBV tapaði öðrum leik sínum í Pepsídeild karla þegar liðið tók á móti Breiðabliki í kvöld. Aðstæður til knattspyrnuiðkunnar voru vægast sagt slæmar, austan rokið stóð á annað markið og hafði mikil áhrif á leikinn. Eyjamenn léku gegn vindinum í fyrri hálfleik og léku oft á tíðum vel, án þess þó að skapa sér færi. […]

Fréttir frestast

Vegna bilunar í prentsmiðjunni Eyjaprent, frestast útgáfa vikublaðsins Frétta um einn dag eða svo. Von er á varahlutum í prentvélina með flugi í fyrramálið og koma Fréttir þá væntanlega út eftir hádegi á morgun, fimmtudag. (meira…)

Fyrrum leikmenn ÍBV mætast í góðgerðarleik í Færeyjum

Næstkomandi laugardag mun fara fram góðgerðarleikur í knattspyrnu þar sem færeyskt old boys lið mun mæta íslenska old boys liðinu Carl. IFC eða Carl er nýtt félag hér á landi en í því spila tveir Eyjamenn, þeir Rútur Snorrason og Tómas Ingi Tómasson, auk þess sem Sverrir Sverrisson, fyrrum leikmaður ÍBV leikur með liðinu. Í […]

Einbeitum okkur að okkar leik

Andri Ólafsson, miðjumaðurinn sterki í liði ÍBV og fyrirliði liðsins er á því að Eyjamenn þurfi bara að einbeita sér að sínum leik í kvöld þegar ÍBV tekur á móti Breiðabliki. „Þetta eru ungir strákar í Breiðablik og sýndu það í fyrstu umferðinni að þeir geta spilað fótbolta. Við hugsum hins vegar ekkert út í […]

Fyrsti heimaleikur ÍBV í kvöld

Í kvöld verður fyrsti heimaleikur ÍBV í Pepsí deild karla þegar Eyjamenn taka á móti Breiðabliki. Liðin hófu leiktíðina á ólíkan hátt, ÍBV tapaði á útivelli fyrir Fram 2:0 á meðan Breiðablik lagði Þrótt að velli 2:1. Leikur liðanna fer fram á iðagrænum og fallegum Hásteinsvelli og hefst klukkan 19.15. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.