Bærinn til í stærri lyftu

Í síðustu viku funduðu fulltrúar bæjar­ins með hagsmunaaðilum vegna endurbyggingar upptöku­mannvirkja við Skipalyftuna. Seinni fundurinn var með þjónustuaðilum en þrjár hugmyndir eru uppi um stærð lyftunnar og er áætlaður kostn­aður við þær frá 250 millj­ónum upp í 600 milljónir. Dýrari kostirnir þýða stærri lyftu sem gæti tekið upp stærri skip. (meira…)

Svona er Breiðafjarðaferjan Baldur

Næsta mánudag mun Breiðafjarðaferjan Baldur leysa Herjólf af hólmi í siglingum milli lands og Eyja en Herjólfur er á leið í slipp þar sem meðal annars á að laga annan af tveimur veltiuggum skipsins sem skemmdist fyrir tæpu ári síðan. Baldur siglir í Breiðafirði, milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Skipið er 1370 […]

Síldarkvótinn að klárast

Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer senn að ljúka þar sem skipin eru um það bil að klára kvóta sína. Einhver eru þegar búin, önnur í síðustu veiðiferð og nokkur eiga eitthvað meira eftir. Engin verkefni blasa við skipunum í bráð, að lokinni síldarvertíðinni, því líklega verða engar haustveiðar úr íslenska sumargots-síldarstofninum vegna sýkingar í stofninum […]

Erfiður rekstur Sparisjóðs Vestmannaeyja á fyrri hluta árs

Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja hefur staðfest árshlutareikning sjóðsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2009. Helstu niðurstöður rekstrarreiknings eru: Hreinar vaxtatekjur eru 205,5 mkr., hreinar þjónustutekjur eru 46,7 mkr. og aðrar tekjur eru 40,1 mkr. Hreinar rekstrartekjur eru samtals 292,3 mkr. Almennur rekstrarkostnaður með afskriftum er 197,2 mkr. Virðisrýrnun eigna reiknast 91,7 mkr. Hagnaður fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.