Sæbjörg Logadóttir kláraði í gærkvöldi að hlaupa 100 kílómetra en vegalengdina hljóp hún á tíu klukkustundum. Sæbjörg er fyrsta konan til að hlaupa 100 kílómetra á einum degi en hún hljóp um tíu kílómetra á 50 mínútum og hvíldi í 10. Fjölmargir hlupu með henni um tíma en Sæbjörg hljóp á hlaupabretti í líkamsræktarstöðinni Hressó.