Samskipti stjórnvalda ekki persónuleg samskipti tveggja einstaklinga
Af gefnu tilefni vil ég undirrituð benda Kristjáni L. Möller, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á að bæjarráð Vestmannaeyja fer með samgöngumál fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, ekki Elliði Vignisson, bæjarstjóri. Það er því einkar ómaklegt af ráðherra að persónugera samskipti á þann hátt sem hann hefur nú gert í tvígang og það í fjölmiðlum. Í opnu bréfi sínu […]
Af gefnu tilefni
Í framhaldi af umræðu um fækkun ferða Herjólfs til 1. maí nk. vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Við fjárlagagerð seint á síðasta ári var ljóst að skera þyrfti umtalsvert niður í samgöngumálum rétt eins og í öðrum málaflokkum. Í lok desember á síðasta ári samþykkti Alþingi fjárlög þessa árs. Í fjárlögum var kveðið á […]
�?etta er flott framtak sjómanna og útgerðar
Á baráttufundinum í Höllinni í annað kvöld verður spjótunum beint að fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Boðað er að stór hluti Eyjaflotans sigli til hafnar í tilefni af fundinum og má því búast við fjölmenni á fundinum. Fundarboðendur eru hagsmunasamtök sjómanna, útgerðarmanna og Vestmannaeyjabær. (meira…)
Stöndum saman!
Dagana 20. janúar til 4. febrúar halda þingmenn Sjálfstæðisflokksins 40 opna fundi um land allt. Þar ræða þeir stjórnmálin í víðu samhengi, m.a. Icesave, sjávarútvegsmál, þjóðaratkvæðagreiðslu og skattamál. Miðvikudaginn 20. janúar verður fundur í Ásgarði, Vestmannaeyjum með alþingismönnunum Unni Brá Konráðsdóttur og Guðlaugi Þór Þórðarsyni. (meira…)
�?g er líka stolt af stöðu Eyjanna

Á föstudögum er ekkert notalegra en að koma heim til sín eftir afar skemmtilega vinnuviku og sjá Fréttir í póstkassanum. Þá kemur að vikulegri heilagri stund húsmóðurinnar á bænum, lesning Frétta og eitthvað gott kruðerí með. Í síðasta tölublaði Frétta rak ég augun í að öll börn á fimmta ári fari í fimm ára deild […]
Fyrnum fyrningarleiðina!
Fyrnum fyrningarleiðina! er yfirskrift baráttufundar sem boðað er til í Vestmannaeyjum annað kvöld, 21. janúar, gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Stór hluti flota Eyjamanna siglir í land á morgun til að sjómennirnir geti tekið þátt í fundinum og sýnt stjórnvöldum hug sinn í verki. (meira…)
Baráttufundur í Eyjum gegn fyrningu og álagi
Útgerðarmenn, sjómenn, fiskvinnsla og bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum standa fyrir fundi á fimmtudagskvöld til að mótmæla m.a. fyrningarleið og útflutningsálagi. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að boðuð breyting á skötuselskvóta ein og sér kosti hagkerfi Eyjanna um 400 milljónir króna á ári og útflutningsálagið kosti samfélagið í Vestmannaeyjum um 200 milljónir. „Fyrningarleiðina þarf ekki að ræða því […]