Sjálfboðaliðastarf í dagsstund

Krabbameinsfélagið leitar um þessar mundir að sjálfboðaliðum um land allt til að selja skeggnæluna fyrir baráttuna gegn krabbameini í körlum á laugardaginn. Í ár vill Krabbameinsfélagið vekja keppnis- og baráttuandann í brjósti karla og rjúfa þögnina um krabbamein karla. Því biður það fólk um land allt að styðja við átakið með sjálfboðavinnu á laugardaginn, en […]

Lofa allri fjölskyldunni góðri skemmtun

Nú er unnið að því að setja upp leikritið Fullkomið brúðkaup, eftir Robin Hawdon, hjá Leikfélagi Vest­mannaeyja. Leikfélag Akur­eyrar sýndi leikritið við gríðarlega miklar vinsældir veturinn 2005 til 2006, bæði norðan heiða og í Borgarleik­húsinu í Reykjavík. Um er að ræða bráðfyndinn farsa en slíkt hefur alltaf gengið vel í Eyjumenn. (meira…)

Eyjalögin í kvöld á Kaffi kró

Hin feykivinsælu Eyjakvöld halda sínu striki og í kvöld kl. 21.00 verður blásið til eins slíks á Kaffi Kró. Að þessu sinni verður Hljómsveitin Tríkót með hinn eina sanna Sæþór vídó, sérstakir gestir kvöldins. – Eyjakvöldin hafa verið haldin fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og verður svo áfram, allavega til vors. Aðgangseyrir er 500 krónur. (meira…)

Pétur Blöndal í Ásgarði í kvöld

Önnur tilraun verður gerði kvöld, að halda fund með Pétri Blöndal, alþingismanni. Pétur ætlaði að koma síðastliðinn laugardag, en ekki gaf til flugs, og því varð að aflýsa fundinum. Flugfært er til Eyja eins og er og góður horfur, þannig að ákveðið er að halda fundinn með Pétri í kvöld kl. 20.00 í Ásgarði. (meira…)

Okurgjaldskrá og undarleg vinnubrögð

Undarlegt hefur verið að fylgjast með framgangi mála varðandi vænt­anlegar siglingar í nýja Landeyja­höfn á komandi sumri. Framganga samgönguyfirvalda hefur óneitan­lega slegið aðeins á þær miklu væntingar sem gerðar hafa verið til þessarar umbreytingar í samgöngu­málum Vestmannaeyja. Samgöngu­yfirvöld hafa slegið á hendur heimamanna um aðkomu að þessu mikilvæga hagsmunamáli og á laun virðist samningur við […]

�?ljóst með skip Ísfélagsins í Chile

Ísfélagið er með tvö skip í smíðum í borginni Concepcion sem er skammt frá upptökum skjálftans mikla í Chile á sunnudaginn. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, sagði hjón sem eru úti á vegum félagsins vera óhult og allt í standi hjá þeim. „Við réðum vélstjóra til að hafa eftirlit með skipinu og kona hans kom út […]

Verður bæði upp­sjávar- og bolfiskskip

Gandí VE 171, skip sem Vinnslu­stöðin festi nýlega kaup á, verður tilbúinn á veiðar í apríl. Um er að ræða vinnsluskip á uppsjávarafla og grálúðu. Einnig er hægt að gera hann út á ísfisk. Mikil ásókn er í pláss á Gandí. Guðni Ingvar Guðnason, útgerðar­stjóri VSV, segist sannfærður um að kaupin á Gandí, sem áður […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.