Hermann og félagar á Wembley

Leikmenn og stuðningsmenn enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, sem Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson leikur með, hafa ekki haft mikla ástæðu til að fagna í vetur. Liðið er í neðsta sæti, vandræði utan vallar hafa loðað við félagið í allan vetur og nú síðast voru dregin níu stig af félaginu, sem veldur því að örlög liðsins eru nánast ráðin […]

Minni og færri skjálftar en í gær

Enn skelfur jörð undir Eyjafjallajökli en skjálftarnir eru mun minni og færri en fyrstu tvo daga skjálftahrinunnar fyrir helgina og nokkru minni en í gær. Að sögn Matthews Roberts, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands, mælast skjálftar á tveggja til þriggja mínútna fresti og hefur virknin verið nokkuð stöðug í dag. (meira…)

Auðvitað kjósum við!

Þráspurður í fyrirspurnartíma á Alþingi á fimmtudag gat fjármálaráðherra ekki fengið það af sér að svara því hvað myndi styrkja samningsstöðu Íslands best í áframhaldandi Icesave-viðræðum – að þjóðin segði já, nei eða færi ekki að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn. Ó nei… ráðherrann taldi að hver og einn kjósandi ætti að fá að gera […]

Breiðablik hafði betur í gærkvöldi

Breiðablik hafði betur gegn ÍBV þegar liðin áttust við í Lengjubikarnum, eins og deildarbikarkeppnin heitir í ár. Lokatölur urðu 0:2 fyrir Blikum en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Eyjamenn voru óheppnir að skora ekki í leiknum, tvö skot Tryggva Guðmundssonar og Antons Bjarnasonar smullu í tréverkinu og Tonny Mawejje átti hörkuskot utan teigs […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.