Enginn leikur hjá stelpunum
Það virðist ætla reynast Hafnafjarðarliðunum í kvennahandboltanum erfitt að koma til Eyja enda um gríðarlegt ferðalag að ræða, akstur á flugvöll í Reykjavík og 25 mínútna flugferð. Þetta er í annað sinn í vetur sem lið gefur leik gegn kvennaliði ÍBV, fyrst voru það Haukar og nú hitt Hafnafjarðarliðið FH. Þess má geta að leikmenn […]
Andri með þrennu

Karlalið ÍBV í knattspyrnu burstaði Þrótt Reykjavík þegar liðin áttust við í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Lokatölur urðu 6:1 en Andri Ólafsson, fyrirliði liðsins fór fyrir sínu liði og skoraði þrennu í leiknum. Tryggvi Guðmundsson fór einni mikinn í leiknum þótt hann kæmist ekki á blað markaskorara en Tryggvið lagði upp þrjú mörk fyrir félaga sína. […]