Farþegafjöldi lækkaður um 136

Farþegafjöldi með Herjólfi verður lækkaður um 136 farþega í hverri ferð í sumar. Þá verður skipið látið sigla með minni olíubirgðir en áður, til að rista ekki of djúpt við Landeyjahöfn. Fækkun farþeganna helgast af alþjóðlegum reglum, sem settar voru eftir að ferjan Estónía fórst á Eystra salti og mikið manntjón varð. Þær ná til […]

Með tárin í augunum, verk í maganum og bullsveittur af átökum

„Tjöldin voru dregin frá og fjörið byrjaði strax. Í fyrsta atriði var ég farinn að skellihlæja, og ég held ég geti fullyrt að það sama átti við um alla gesti kvöldsins. Og svoleiðis gekk það! Hláturrússíbani frá upphafi til enda, það öflugur að í lok sýningar var ég ennþá hlæjandi, með tárin í augunum, verki […]

Gosbjarminn sást greinilega í gærkvöldi

Óskar Pétur Friðriksson renndi austur á Heimaey um ellefuleytið í gærkvöldi til að fylgjast með eldsumbrotunum í Fimmvörðuhálsi. Gosbjarminn var mjög greinilegur og má sjá myndir frá Óskari hér að neðan. (meira…)

32 ferðir á viku í sumaráætlun í Landeyjahöfn

Nú er ljóst hvernig sumaráætlun Herjólfs verður en skipið mun sigla í Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst verða farnar 32 ferðir á viku. Þannig verða farnar fjórar ferðir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, fyrsta ferð 7.30 frá Eyjum, svo 10.30, 17.00 og 20.00. Síðasta ferð frá Landeyjahöfn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.