Vorboðinn ljúfi sestur upp

Víðast hvar er lóan talinn vera vorboðinn ljúfi en því er öðruvísi háttað í Vestmannaeyjum. Hér bíða flestir spenntastir eftir því hvenær lundinn sest upp í fjöll en það gerðist einmitt í dag, 13. apríl. Þórarinn Sigurðsson, rafvirki og sérlegur áhugamaður um lundastofninn, sá lunda upp í fjalli síðdegis í dag. Georg Eiður Arnarson, útgerðarmaður […]

Lög afnámu ekki sjálfskuldarábyrgð

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu og karl til að greiða Sparisjóði Vestmannaeyja 1.024.686 krónur. Um var að ræða sjálfskuldaábyrgð en fólkið hélt því fram að ábyrgð þeirra væri ekki lengur fyrir hendi, s.s. vegna nýlegra breytinga á lögum um ábyrgðamenn. Dómurinn taldi lögin hins vegar ekki afturvirk. (meira…)

Ekið utanvega á friðuðu landi

Á sama tíma og margir landsmenn fylgdust með umfjöllun fréttamiðlanna um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var fríður hópur fólks að leika sér á torfæruhjólum á nýja hrauninu á Heimaey. Svæðið sem það valdi sér nýtur hverfisverndar samkvæmt Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014, það er á náttúruminjaskrá auk þess sem það nýtur sérstakrar verndar samkvæmt 37. gr laga um […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.