Selfoss burstaði ÍBV í dag

Selfoss burstaði ÍBV 5-0 í æfingaleik sem fram fór á gervigrasvellinum á Selfossi í morgun. Ingi Rafn Ingibergsson og Guðmundur Þórarinsson skoruðu í fyrri hálfleik og komu Selfyssingum í 2-0. Á síðustu tuttugu mínútunum bættu Arilíus Marteinsson, Jón Daði Böðvarsson og Einar Ottó Antonsson síðan við mörkum. (meira…)

Guðrún fyrsti varamaður

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Suður­landi og fyrrverandi við­skiptaráðherra, hefur ákveðið að víkja tímabundið af þingi. Björgvin tilkynnti um þessa ákvörðun á fimmtudag en hann telur veru sína á þingi geta truflað þá vinnu sem þingið er að sinna í framhaldi af birtingu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Anna Margrét Guðjónsdóttir tekur sæti á alþingi í […]

Líkur á töfum verkloka

­Þó ekkert bendi til þess að flóð í Markarfljóti af völdum gossins hafi valdið skemmd­um á Lan­d­eyja­höfn eða breytt dýpi út af henni hefur Siglingastofnun gefið út einhverja seinkun á að höfnin verði tekin í notkun. Í frétt frá stofnuninni segir að engar skemmdir hafi orðið á mann­virkjum sem eru í smíðum í Landeyjahöfn. Sama […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.