Eyjamenn höfðu betur í sandkassaleiknum

Úrvalsdeildarlið ÍBV í knattspyrnu tók á móti 1. deildarliði HK á malarvellinum í dag. Aðstæður voru vægast sagt hörmulegar, bæði er völlurinn handónýtur auk þess sem blés hressilega í Eyjum í dag og hitastigið var frekar lágt. Ofan á allt saman þurftu leikmenn að glíma við sandrok á vellinum. Engu að síður reyndu leikmenn beggja […]
Sátu föst í Svíþjóð vegna gossins

Tuttugu nemendur og tveir kennarar FÍV komust ekki heim til Íslands á tilsettum tíma þar sem flugsamgöngur röskuðust vegna eldgossins í Eyjafjalajökli. Hópurinn lagði upp í ferð til Eskilstuna í Svíþjóð mánudaginn 12. apríl og átti að fljúga heim á laugardaginn en tafðist um tvo sólarhringa og komst heim með flugi á mánudag. (meira…)
Toyota sýnir fjórar nýjar tegundir

Toyota umboðið verður með bílasýningu næsta laugardag þar sem nýjustu bílarnir verða til sýnis og sölu. Sýningin verður við húsnæði Nethamars að Flötum og ætti enginn bílaáhugamaður að láta hana framhjá sér fara. Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, var spurður út í sýninguna og hvað yrði í boði á laugardag. (meira…)
Kveðjuleikur malarvallarins?

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur í dag æfingaleik gegn HK. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Helgafellsvelli en vegna kuldakastsins síðustu daga, er völlurinn ekki tilbúinn eins og stefndi í. Leikurinn fer því fram á malarvellinum og verður væntanlega kveðjuleikurinn á þeim merka knattspyrnuvelli enda heyrir það til undantekninga að lið æfi og spili […]