Breiðablik Pæjumótsmeistari 2010

Pæjumóti ÍBV og TM lauk í dag þegar úrslitaleikir fóru fram á Hásteinsvellinum. Breiðablik var afar sigursælt á mótinu, varð Pæjumótsmeistari í A-, B- og C-liðum og í þriðja sæti í D-liðum. Þar varð Valur hins vegar meistari en sigurliðin má sjá hér að neðan. Mótið í heild sinni tókst afar vel upp en hægt […]
Kærumálið í róðrakeppninni í skoðun hjá lögfræðingi

Eins og greint var frá á Eyjafréttum.is í gær hefur Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi kært Sjómannafélagið Jötunn vegna meints siðleysi í kappróðri á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Forsvarsmenn Jötuns hafa brugðist við kærunni og eru lögmenn félagsins að yfirfara hana en kærunni verður svarað næstkomandi mánudag. „Vegna mikils lögfræðikostnaðar sjáum við okkur ekki fært að hafa […]
Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á Ragnheiði Elínu Árnadóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. Eyverjar telja mikilvægt að forysta Sjálfstæðisflokksins endurspegli þann fjölbreytileika sem einkennir flokkinn. (meira…)