Ekkert bólar á sjúkraflugvél
Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum með að ekki er sjúkraflugvél staðsett í Eyjum. Í neyðartilvikum er send flugvél frá Akureyri. það hefur þegar gerst nokkrum sinnum. Fréttir ræddu við bæjarfulltrúana Páleyju Borgþórsdóttur, Sjálfstæðisflokki og Pál Scheving, Vestmannaeyjlista og eru þau sammála um að ástandið sé óviðunandi. (meira…)
�?rjú félög hafa áhuga á Hermanni Hreiðarssyni

Enn er óvíst hvar varnarjaxlinn Hermann Hreiðarsson mun leika á næsta tímabili en þrjú félög hafa sýnt honum áhuga. Samningur Hermanns við Portsmouth er að renna út og félagið vill halda honum. Að auki hefur eitt enskt félag og eitt annað félag utan Englands áhuga á Hermanni en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við […]
Varúðarmerkingar við Sprönguna
Setja þarf upp merkingar við Sprönguna í Vestmannaeyjum til að vara fólk við hættum sem geta falist í því að spranga. Þetta er mat Adolfs Þórsson formanns Björgunarfélags Vestmannaeyja eftir að stúlka fótbrotnaði á svæðinu um síðustu helgi. Adolf segir að vegna þess að svæðið sé opið og hver sem er geti komið og sprangað […]