Tveir kærðir fyrir meintan akstur undir áhrifum fíkniefna
Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið enda töluverður fjöldi fólks í bænum í tengslum við Goslokahátíðina. Var Lögregla með mikið eftirlit vegna þess. Var nokkur ölvun meðal gesta Goslokahátíðarinnar og þurfti Lögregla að aðstoða nokkra sökum þess hversu ölvaðir þeir voru. Þá fengu þrír aðilar á sig kæru fyrir […]
Umferð um Landeyjahöfn bönnuð

Mikil umferð smærri báta hefur verið um Landeyjahöfn undanfarið og leggja jafnframt margir leið sína að höfninni landmegin á bílum. Fólk á öllum aldri, jafnvel mæður með smábörn og mjög roskið fólk hefur sést þar klifrandi í grjótgörðunum innan um stórvirkar vinnuvélar. Engar slysavarnir eru til staðar í höfninni og því skapa óþarfa ferðalög almennings […]
Einkennileg tímasetning á bikarleik hjá stelpunum

Það er óhætt að segja að tímasetningin á leik ÍBV og Hauka í 8-liða úrslitum Visabikars kvenna vekji athygli enda hefst leikurinn klukkan 16:00 á föstudag. Flestir eiga von á hörkuleik enda þótt Haukar leiki í úrvalsdeild og ÍBV í 1. deild, þá er munurinn ekki mikill á liðunum. Sem dæmi léku liðin tvo leiki […]
�?rjú sæti laus á miðvikudeginum til Eyja með Herjólfi
Ekkert lát virðist vera á bókanir í Herjólf fyrir Þjóðhátíðina. Nú er einungis eitt sæti laust í 9.30 ferðina og tvö sæti laus í 12.30 ferðina. Alls verða farnar fjórar ferðir þann daginn en fyrir er uppselt í hinar tvær sama dag auk þess sem allt er uppselt fimmtudag og föstudag. Þá eru farnar sex […]
Gerði upp föðurmissi með stuttmynd

Útskriftarnemi frá Kvikmyndaskóla Íslands gerði upp föðurmissi með því að gera stuttmynd um slys sem varð á togaranum Breka frá Vestmannaeyjum fyrir 18 árum. Með eitt aðalhlutverkanna fer leikarinn Valdimar Örn Flygenring sem var til sjós með föðurnum vegna gerðar heimildarmyndar um sjómennsku stuttu fyrir slysið. (meira…)
Komu fjallgöngukonu til bjargar
Björgunarsveitarmenn í Vestmannaeyjum komu erlendri göngukonu til hjálpar í gærkvöldi eftir að hana hafði borið af leið á fjalli ofan við Herjólfsdal á Heimaey. Þar er snarbratt og þegar hún áttaði sig á að hún var komin í vandræði, hringdi hún á gistiheimilið, þar sem hún bjó, og þaðan var kallað eftir aðstoð. Leiðangurinn gekk […]