Yfirráðin yfir fjarstýringunni

Þegar aðeins eitt sjónvarp er húsinu, og fjarstýringin er líka ein, þá er stundum deilt um yfirráðin. Hver á að ráða því sem horft skal á í sjónvarpinu. – Hér er eitt ráð, sem svínvirkar. Allavega í þetta skiptið. (meira…)

ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvelli á morgun

Eyjamenn þóttu taka stórt upp í sig í vor, þeir sögðust stefna á efri hlutann. Skrifari á heimasíðu Fram, var svo brattur að hafa nokkra trú þeim orðum Eyjamanna og spáði þeim 6. sæti. Frammistaða ÍBV hefur gert það að svartsýnisspá! – ÍBV hefur farið á kostum og er efst ásamt Blikum með 23 stig. […]

Sjúkraflug í Vestmannaeyjum

Mikil umræða hefur verið um stöðu sjúkraflugs í Vestmannaeyjum undanfarnar vikur og er ætlun mín að reyna að varpa ljósi á hvernig staðan er og hvort þeir sem slasast eða veikjast alvarlega hafi jafna möguleika og aðrir landsmenn til að fá besta mögulegu læknismeðferð á sem stystum tíma. Til að gera fólki grein fyrir hvað […]

Upppantað í nær allar ferðir með Herjólfi og Flugfélagi Íslands

„Þetta er ósköp svipað og verið hefur síðustu ár,“ sagði Bragi Ólafsson, hjá Flugfélagi Íslands, þegar hann var spurður út í bókanir fyrir þjóðhátíð. „Við vorum með 12 vélar á föstu­deginum í fyrra og verðum með 12 núna. Á mánudeginum vorum við með 28 vélar og erum komin með 22 vélar núna og ekki alveg […]

Íslandsmótið í höggleik unglinga hófst í morgun

Íslandsmótið í höggleik unglinga hófst í morgun á golfvellinum í Vestmannaeyjum. 161 kylfingur er skráður til leiks en keppt er í þremur aldursflokkum, karla og kvenna, 16-17 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri. Leiknar verða 54 holur, 18 hvern keppnisdag en mótinu lýkur á sunnudagskvöld. Ef veðurspáin rætist, verður algjör bongóblíða í Eyjum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.