Fjölmenn vígsluathöfn Landeyjahafnar

Það fór varla framhjá mörgum að í dag var Landeyjahöfn formlega tekin í notkun með jómfrúarferð Herjólfs og vígsluathöfn hafnarinnar. Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina, bæði Vestmannaeyingar sem fóru með Herjólfi upp í Landeyjahöfn, sem og aðrir gestir af fastalandinu. Fólkið naut veðurblíðunnar í Landeyjunum í dag en Herjólfur sigldi svo aftur til Eyja klukkan 19:00. […]
Skutlþjónusta í Landeyjahöfn

Nokkrir framtakssamir Eyjamenn hafa tekið höndum saman um að koma á þjónustu við þá sem þurfa skutl úr Landeyjahöfn til Reykjavíkur á einkabílum og deilt þar með kostnaði við aksturinn. (meira…)
Herjólfur lagstur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrsta sinn

Kl. 16.35 lagðist Herjólfur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrstu formlegu ferð sinni til hinnar nýju hafnar. Mikill fjöldi tók sér far með skipinu og enn fleiri tóku á móti því í Landeyjahöfn. Lúðrasveit Vestmannaeyja var meðal farþega og spilaði Eyjalögin. Og meðan beðið var eftir að skipið kæmi að bryggju var leikið á harmonikkur […]
�?að er von og trú bæjarstjórnar að þjónusta Landeyjahafnar verði til verulegra hagsbóta fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum

Eftir um það bil 15 mínútur verður Landeyjahöfn formlega vígð. Í tilefni af því fundaði bæjarstjórn Vestmannaeyja um borð í Herjólfi kl. 16.15 í fyrstu ferð skipsins í nýjahöfn. Svo hljóðandi samþykkt var þar gerð: (meira…)
Í brekkunni í loftið á mánudaginn

Á mánudaginn kl. 13 fer í loftið útvarpsþátturinn Í brekkunni á Suðurland FM. Þátturinn, sem er upphitunarþáttur fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, verður í loftinu fram á laugardag og ávallt þrjár tíma í senn og frá þriðjudegi verður þátturinn sendur beint út frá Volcano Café í Vestmannaeyjum. Brgsveinn Theodórsson, Bessi, segir að það verði þétt dagskrá […]
Hvernig er Landeyjahöfn?

Í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun er farið ítarlega yfir alla tölfræði um Landeyjahöfn. Þar kemur m.a. fram að hafnarmynnið sé 90 metrar á breidd og 600 metrum utan við ferjubryggjuna. Bryggjan inni í höfninni er steypt úr forsteyptum einingum og er 70 metrar að lengd og með 10 metra og 15 metra löngum göflum. Þá er […]
Landeyjahöfn vígð í dag

Í dag verður Landeyjahöfn formlega vígð en Herjólfur er nú í sinni síðustu ferð til Þorlákshafnar. Eftir fyrri ferð skipsins samkvæmt áætlun, verður siglt upp í Landeyjahöfn í fyrsta skipti. Auk boðsgesta, býðst Eyjamönnum að koma með skipinu, svo lengi sem pláss leyfir. Komið verður til baka klukkan 19:00, eftir að athöfn lýkur. (meira…)