�?viðkomandi umferð skipa og báta um Landeyjahöfn bönnuð

Öll umferð annarra skipa og báta en Herjólfs um Landeyjahöfn er bönnuð. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun sem send var út nú síðdegis en ástæðan er sú að bannið stendur á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Einnig er nauðsynlegt að takmarka siglingar út […]
DJAMM!

Símafyrirtækið Ring fer skemmtilega leið til að vekja athygli á fyrirtækinu en auglýsingar á vegum Ring hefur verið að birtast í ljósvakamiðlum undanfarið. Steindi jr. fer með aðalhlutverkin í auglýsingunum á vegum fyrirtækisins en honum barst óvæntur liðsauki í nýjustu auglýsingunni. Þar fer þingmaðurinn Árni Johnsen hamförum en sjón er sögu ríkari. Auglýsinguna má sjá […]
Gufan hitar upp fyrir �?jóðhátíð Vestmannaeyja 2010

Útvarpsstöðin Gufan fer aftur í loftið fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Gufan var endurvakin í fyrra í tilefni þess að þá voru 20 ár liðin frá því að stöðin var fyrst starfrækt. Leikurinn verður endurtekinn nú og hefjast útsendingar með formlegum hætti í fyrramálið, föstudaginn 23. júlí, klukkan 9 og standa yfir hátíðina. Gufan hitar upp fyrir […]
Búið að lækka breytingagjald í Herjólf í 500 krónur

Ein af þeim nýjungum sem voru teknar upp við afgreiðslu Herjólfs þegar skipið hóf siglingar í Landeyjahöfn, var breytingagjald á pöntunum. Breytingagjaldið var upphaflega 1.000 krónur en hefur nú verið lækkað í 500 krónur. Hildur Sævaldsdóttir, hjá Herjólfi segir nauðsynlegt að hafa breytingagjald til að minnka óþarfa pantanir í skipið. (meira…)
Humarveiðin gengur vel
Búið er að veiða um 71,6% af humarkvótanum, sem er 2.200 tonn upp úr sjó. Rammi hf. og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum eru með um helming kvótans og hefur gengið vel hjá Ramma en VSV á meira eftir þar sem fyrirtækið geymdi 130 tonn frá síðasta ári. (meira…)