Bara blíða á þjóðhátíðinni – eins langt og spár ná

Miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir hjá flutningsaðilum, má reikna með svipuðum fjölda gesta til Eyja á þessa þjóðhátíð og var í fyrra. Og veðrið sem skiptir svo miklu máli ætti ekki að trufla þjóðhátíðarhald, allavega eins langt og veðurspár hafa birst. Á veðurvefnum belgingur.is er veðurspá fram á laugardag. (meira…)

Sterkar Stjörnur unnu ÍBV-stúlkur

Í blíðskaparveðri á Hásteinsvelli í dag, þurftu ÍBV stúlkur að sætta sig við tap í undanúrslitum Visa bikarsins. Þær fundu ofjarla sína í Stjörnustúlkum sem unnu verðskuldað og sem leika þá til úrslita við Val um bikarmeistaratitlinn. En árangur ÍBV stelpanna í bikarkeppninni hefur samt verið afar góður, að komast í undanúrslitin. (meira…)

Knattspyrna og aftur knattspyrna

Það er mikið um að vera á knattspyrnusviðinu í Eyjum í dag. Auk bikarleiks ÍBV og Stjörnunnar kl. 14.00 verður einnig leikur KFS og KFK á Helgafellsvelli og hefst sá leikur einnig kl. 14.00. Þessi tvö lið berjast um laust úrslitasæti í B-riðli 3. deildar. (meira…)

Stórleikur í dag hjá stelpunm

Í dag klukkan 14:00 leikur kvennalið ÍBV stærsta leik liðsins í áraraðir þegar liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í undanúrslitum bikarkeppninnar. ÍBV leikur sem kunnugt er í 1. deild Íslandsmótsins en leikurinn fer fram á Hásteinsvellinum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast svo úrvalsdeildarliðin Valur og Þór/KA. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.