Flugvellinum í Vestmannaeyjum verður stjórnað með sama hætti um verslunarmannahelgina og í Keflavík, Reykjavík og á Akureyri, að sögn Friðþórs Eydal hjá Isavia. Í stað þess að einn starfsmaður sinni upplýsingaþjónustu í flugturninum eins og verið hefur í Vestmannaeyjum munu fimm starfsmenn sinna honum á vöktum yfir verslunarmannahelgina og koma fjórir þeirra frá Reykjavík.