Sól og blíða á öðrum degi þjóðhátíðar

Annar dagur þjóðhátíðarinnar er nú að baki en gestir hátíðarinnar hafa svo sannarlega verið heppnir með veður. Í Eyjum er nú sól og blíða, en dagurinn í gær var líklega einn af betri veðurdögum sumarsins í Eyjum og minnti klæðnaður fólksins meira á það sem þekkist við miðbaug en við suðurströnd Íslands. (meira…)
Engin meiriháttar mál komu upp í nótt
Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt við að sinna ýmsum verkefnum í tengslum við þjóðhátið án þess að nein meiriháttar mál kæmu upp. Tveir gistu fangageymslu í morgun vegna líkamsárása. Skýrslutökur yfir þeim fara fram í dag. Nokkur fíkniefnamál komu upp í gær og í nótt. (meira…)
Árni Johnsen fær liðsauka

Samkvæmt áræðanlegum heimildum Eyjafrétta verða tveir stuðboltar með Árna Johnsen í brekkusöngnum. Þetta eru Eyjamennirnir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó sem báðir spila með hljómsveitinni Tríkot. Árni Johnsen hefur einn séð um brekkusönginn undanfarna áratugi en kallar nú til þá Jarl og Sæþór, sem hafa mikla reynslu af gítarspili og stuði. Brekkusöngur Árna er einn […]
�?venju þægir þjóðhátíðargestir

Nóttin var róleg í Vestmannaeyjum miðað við aðfaranótt sunnudags um Verslunarmannahelgi. Að sögn lögreglumanns á vakt voru Þjóðhátíðargestir óvenjurólegir og voru menn því ánægðir með gang mála í Herjólfsdal. Þrír gistu þó fangageymslu en lögreglan benti á að þar væri „ekki uppselt“ ennþá. (meira…)