Danskir heimildaþættir um hvíta þræla fjalla m.a. um Tyrkjaránið

Síðasta vor kom til Eyja kvikmyndatökufólk frá Danmarks Radio (DR) en fólkið var aðvinna að þáttagerð um hvíta þræla og múslímska sjóræningja. Í þáttunum var m.a. fjallað um Guðríði Símonardóttur sem numin var á brott í Tyrkjaráninu 1627. Nú eru þættirnir tilbúnir og verða sýndir næstu sunnudaga á DR. (meira…)
�?vissa með Hurst

Heyrst hefur að enski bakvörðurinn James Hurst sé á förum frá ÍBV. Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri ÍBV, segir ekkert staðfest í þeim efnum en viðurkennir þó að Hurst gæti horfið með skömmum fyrirvara kalli Portsmouth á hann. Hurst er á lánssamningi hjá ÍBV til 30. ágúst og hann mun alltaf missa af lokaspretti deildarinnar. Fari hann […]
Herjólfur hafi fortakslausan forgang í Landeyjahöfn
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur sett hafnarreglugerð fyrir Landeyjahöfn, Rangárþingi eystra. Markmið hennar er að leitast við að tryggja örugga aðstöðu til ferjusamgangna milli lands og Vestmannaeyja. Í henni er kveðið á um að áætlunarsigling Vestmannaeyjaferju hafi fortakslausan forgang umfram aðra starfsemi eða rekstur á hafnarsvæðinu. (meira…)
Tökur á Djúpinu hafnar í Eyjum

Tökur kvikmyndarinnar Djúpið eftir Baltasar Kormák hófust í Vestmannaeyjum í dag. Kvikmyndin er byggð á atburðum í tengslum við Helliseyjarslysið 11. mars 1984. Þá fórust fjórir menn en einn komst lífst af með því að synda í land eftir að vélbáturinn Hellisey VE 503 sökk um fimm kílómetra austur af Heimaey. Kvikmyndin er byggð á […]