Traustur og góður bátur og happafley

Stormur Breki, báturinn sem nota á í kvikmyndinni Djúpið, sem nú er verið að taka upp í Eyjum, var upphaflega smíðaður fyrir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum. Kom hann nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum í janúar 1958. Hann hét Reynir VE 15 og hélt hann nafninu lengst af. Fréttir ræddu við Engilbert Sigurðsson, vélstjóra og síðar vörubílstjóra […]
�?akklátur fyrir hvað gekk þó vel

Mikið hefur mætt á starfsfólki Herjólfs allt frá því siglingar hófust í Landeyjahöfn enda flutti skipið um tíu þúsund farþega til og frá Eyjum í kringum þjóðhátíð. Mikið var að gera vikuna áður og fullbókað fyrir bíla vikuna eftir þjóðhátíð. Er ekkert lát á flutningunum. Guðmundur Nikulásson, hjá Eimskip innanlands, segir afgreiðslu á Herjólfi á […]
Bifreið rann af stað og endaði á grindverki

Bifreið sem stóð við Gerðisbraut, rann af stað og endaði á girðingu við hús á Helgafellsbraut. Engin slys urðu á fólki en skemmdir urðu á bílnum og grindverkinu. Helgafellsbrautin er afar brött og ef bifreiðin hefði farið lengra niður götuna, hefði hún fljótt náð miklum hraða og skapað enn meiri hættu. Það var því lán […]