Albert Sævarsson býst við að taka eitt tímabil í viðbót

Albert Sævarsson, markvörður ÍBV, býst við að leika áfram með Eyjamönnum næsta sumar. „Ég býst við að halda áfram. Ég ætla að fá skrokkinn í lag og sjá svo til, sagði Albert en hann hefur verið að glíma við meiðsli. „Ég er búinn að vera handónýtur í allt sumar. Ég fór í liðþófaaðgerð og er […]
Leita verður allra leiða til að opna Landeyjahöfn sem fyrst

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman í hádeginu en eina fundarefnið var lokun Landeyjahafnar. Bæjarráð vill að allra leiða verði leitað við að opna Landeyjahöfn aftur sem fyrst og minnir á að framkvæmdin var 600 milljón krónum ódýrari og því borð fyrir báru varðandi lokafrágang hafnarinnar. Þá vill bæjarráð að tafarlaust verði ráðist í að hanna og […]
Herjólfur kenndi grunns á háflóði

Landeyjahöfn er ófær og mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar um óákveðinn tíma. Skipstjóri Herjólfs segir að sjórinn sé gruggugur þrjá kílómetra út frá suðurströndinni vegna framburðar úr Markarfljóti. Herjólfur tók niðri í Landeyjahöfn á sunnudag. Í gær sigldi skipið samkvæmt áætlun í nýju höfnina en kenndi þar grunns á háfjöru um hádegisbil. Í gær var […]
Landeyjahöfn lokuð

Eftir morgunferð Herjólfs í Landeyjahöfn í dag er ljóst að hún er ófær. Því verður siglt til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum í dag kl. 15:15. Ekki er ljóst hversu lengi þarf að sigla til Þorlákshafnar. Áætlun verður frá Vestmannaeyjum klukkan 07:30 og 15:15. Frá Þorlákshöfn 11:15 og 18:45. (meira…)
Fjögur af tólf fallegustu mörkunum komu á Hásteinsvelli

Nú stendur yfir kosning á fallegasta marki sumarsins í Pepsídeild karla á www.ruv.is en valið stendur á milli tólf glæsilegra marka. Fjögur af þessum tólf mörkum komu á Hásteinsvelli og skoruðu Eyjamenn tvö þeirra. Sigurmark Eiðs Arons Sigurbjörnssonar gegn Keflavík í sumar hlýtur að koma sterklega til greina og sömuleiðis þrumufleygur Danien Justin Warlem gegn […]
Leikskólasaga
Rekstur leikskóla er ekki lögbundið skylduverkefni sveitarfélaga. Engu síður er sú þjónusta ein sú mikilvægasta sem veitt er í nútíma sveitarfélögum. Í Vestmannaeyjum er horft til barna sem helstu auðlinda samfélagsins og því mikilvægt að standa vel að þjónustu við þau. Ánægja, líðan og árangur þjónustuþega eru einnig meðal mest notuðu mælikvarða á gæði samfélagsins. […]