Dýpkunarskipið Perla bíður færis að hefja dýpkun í Landeyjahöfn að nýju

Búið er að laga rörið sem brotnaði, þegar dýpkunarskipið Perla var að störfum utan við Landeyjahöfn. Hinsvegar er ölduhæð við höfnina 1.9 metri eins og stendur og því of mikil ölduhæð fyrir skipið, sem nú bíður færis. Skipstjórnarmenn Perlunnar gera sitt besta til að nýta hverja stund sem gefur til dýpkunar. (meira…)
Vera án meiðsla verður minn mesti sigur

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur glímt við erfið meiðsli síðustu ár en sér nú loks fram á að losna við þau. „Þetta hefur tekið sinn tíma en ég myndi segja að ég hafi ekki verið svona góð eins og ég er núna í tvö ár og það er mikið gleðiefni. Ég hef fengið mikla hjálp frá […]
Eyjamenn sækja ÍR heim í kvöld

Karlalið ÍBV sækir í kvöld ÍR heim í 3. umferð 1. deildar Íslandsmótsins. Leikur liðanna hefst klukkan 18:15 og fer fram á heimavelli ÍR-inga í Austurbergi. ÍBV er í 1.-2. sæti ásamt ungmennaliði FH en bæði lið unnu fyrstu tvo leiki sína. ÍR er hins vegar í 3.-6. sæti eftir að hafa unnið Fjölni en […]
Hótel �?órshamar til sölu fyrir sanngjarnt verð

„Það er bara verið að spá og spekúlera,“ sagði Gísli Valur Einarsson, eigandi Hótels Þórshamars þegar hann var spurður hvort hótelið væri til sölu. „Það er verið að skoða þetta en ég ímynda mér að ekkert verði úr sölu, ég læt það ekki nema ég fái sanngjarnt verð,“ sagði Gísli en einn aðili hefur sýnt […]