Aukin arðsemi og að gera heiminn skemmtilegri

Úthlutað hefur verið styrkjum fyrir árið 2010 sem Vaxtarsamningur Suðurlands úthlutar. Alls bárust 22 umsóknir og hlaut helmingurinn styrki, samtals 20 milljónir sem í boði voru. Tvö verkefni í Vest­mannaeyjum hlutu styrki. Hið fyrra, Aukin arðsemi hrognavinnslu með aukinni skynjara- og upplýsinga­tækni fékk 3 milljónir króna og hið seinna, Margmiðlunartorg, fékk 2,5 milljónir króna. (meira…)

Hefur áhyggjur af því að stjórnarskrá verði breytt í flýti eða reiði

Tryggvi Hjaltason býður sig fram til stjórnalagaþings. Helsta ástæða þess að hann býður sig fram er sú að hann hefur áhyggjur af því að góðri stjórnarskrá sem nú er við lýði, verði breytt í flýti eða reiði. „Það hefur t.d. aldrei verið sýnt fram á að bankahrundið eða önnur stórvandamál okkar Íslendinga megi rekja til […]

�?tvegsbændafélag Vestmannaeyja 90 ára

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja fagnar í dag 90 ára afmæli félagsins en stjórn ÚV kom saman í morgun. Félagið var stofnað 20. október 1920 en saga félagsins hefur verið gefin út á þessum tímamótum. Sigurgeir Jónsson sá að miklu leyti um verkið en auk þess tók Benedikt Gestsson blaðamaður allmörg viðtöl. En þrátt fyrir gleðina yfir afmælinu […]

Viðræður standa yfir við Heimi

Enn hefur ekki verið gengið frá ráðningu á þjálfara knattspyrnuliðs ÍBV en samningur Heimis Hallgrímssonar, sem hefur stýrt Eyjamönnum síðustu ár, rann út eftir sumarið. Heimir er í fríi erlendis en Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar segir að viðræður standi yfir við Heimi. „Við sendum Heimi út með samning í fararteskinu sem hann er að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.