Sló flötum í innsiglingunni

Herjólfi sló næstum flötum við hafnarmynnið í Landeyjahöfn þegar skipið kom þangað um klukkan 11.00 í morgun. Allt fór þó vel en ekki voru farnar fleiri ferðir í Landeyjahöfn í dag. Síðdegisferðin var farin í Þorlákshöfn og einnig verður siglt þangað á morgun meðan málið er rannsakað. (meira…)

Af hverju ekki Landeyjahöfn?

Flestir Eyjamenn klóra sér í hausnum þessa stundina yfir þeirri staðreynd að farþegaferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar en ekki í Landeyjahöfn. Klukkan 17:00 sýndi vindmælir á Stórhöfða norð-austan einn metra á sekúndu og ölduhæð við Landeyjahöfn 1,6 metri, aðstæður sem öllu jöfnu væru ákjósanlegar. Ívar Gunnlaugsson, skipstjóri Herjólfs segir hins vegar að einhverjar breytingar hafi […]

Farvegi Markarfljóts ekki breytt í fyrsta sinn

Í tilefni frétta um að breyta eigi farvegi Markarfljóts og viðbrögð ýmissa aðila og stofnanna í kjölfarið rifjar Kristinn R. Ólafsson „okkar maður í Madrid“ upp sögu sem Ási í Bæ skrifaði í bókina Skáldað í skörðin. Þar segir frá Ögmundi Ögmundssyni í Auraseli, þann galdramann sem lék sér m.a. að því að breyta árfarvegi […]

Ekki siglt meira til Landeyjahafnar í dag

Herjóflur siglir ekki meira til Landeyjahafnar í dag en skipið er statt í höfninni og siglir þaðan til Eyja klukkan 12:30. Síðdegis verður svo siglt til Þorlákshafnar og verður brottför frá Eyjum klukkan 15:15 og frá Þorlákshöfn 18:45. „Spár hafa breyst þannig að miklar líkur eru á að siglt verði á Þorlákshöfn á morgun líka,“ […]

Fer fram á öryggisúttekt

Elliði Vignisson, bæjarstjóri fer fram á það við Geir Gunnlaugsson, landlækni að gerði verði öryggisúttekt fyrir þjónustusvæði Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja vegna boðaðra niðurskurðaraðgerða. Óskað er eftir því að gerð verði grein fyrir því hvaða áhrif boðaður niðurskurður kæmi til með að hafa á getu stofnunarinnar til að veita bráðaþjónustu, sem og almenna lækningaþjónustu, fæðingaþjónustu, gegna hlutverki […]

Herjólfur kominn á �??fésið�??

Í vikunni var sett upp Facebook síða fyrir Herjólf. Síðunni er ætlað að mæta að einhverju leyti auknum kröfum um aðgengi upplýsinga en allar fréttir sem fara inn á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is verða settar inn á Facebook-síðuna. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að á einum sólarhring hafi verið komnir 140 fylgjendur án þess að […]

Konukvöldi Hallarinnar frestað

„Því miður verðum við að fresta konukvöldinu þangað til í vor, forsala er ekki nógu mikil til að við getum treyst á að aðsókn væri næg til að standa undir kostnaði. En ballið með hljómsveitinni Í svörtum verður á laugardagskvöldið,“ sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hallarinnar. (meira…)

Heiðraði fimm Eyjamenn

Fimm Eyjamenn voru heiðraðir á 40 ára afmæli Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands um síðustu helgi, fyrir góð störf í þágu knattspyrnunnar. Gísli Magnússon og Viktor Helgason voru sæmdir gullmerki félagsins og þeir Sigurlás Þorleifsson, Heimir Hallgrímsson og Jón Ólafur Daníelsson voru sæmdir silfurmerki félagsins. (meira…)

�?sáttir við færslu ósa Markarfljóts

Skipulagsstofnun hefur ekki borist erindi frá Siglingastofnun um færslu ósa Markarfljóts vegna Landeyjahafnar. Að mati Skipulagsstofnunar er framkvæmdin tilkynningaskyld. Bóndinn á Seljalandi er ósáttur við að hafa ekki fengið upplýsingar um málið og óttast flóðahættu verði af framkvæmdinni. Samgönguráðherra samþykkti í gær þrjár tillögur Siglingastofnunar vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.