Veðurblíða í Landeyjahöfn

Nú hefur veðurblíðan leikið við þá sem er að vinna að dýpkun Landeyjahafnar. Hefur dýpkunin gengið einstaklega vel í þeirri blíðu sem þar er. Búið er að fjarlægja yfir 30.000 m³ úr hafnamynninu og rennunni fyrir utan það. Siglingastofnun er að semja við Íslenska gámafélagið um að fá nýtt dýpkunarskip til landsins, Skandia, en það […]

Eyjamenn fyrir þig!

Það stakk mig dálítið í gær þegar ég las grein í Fréttum undir yfirskriftinni : ,,Eyjamenn í kjöri til stjórnlagaþings skrifa: Ekki klikka á að kjósa” og svo listi af Eyjamönnum undir greininni. Síðast þegar ég vissi var ég Eyjamaður, strangt tiltekið Eyjakona en samt. Ég hefði viljað fá að vera með á listanum og […]

Stöndum saman…

Á morgun verður kosið til stjórnalgaþings. Ég ákvað á sínum tíma að bjóða mig fram til þingsins og er því að skrifa þessa grein hér og biðla til Eyjamanna að fjölmenna á kjörstað á morgun. Ég veit að það er kominn kosningahugur í fólk víða um land. Því er mikilvægt ef við Eyjamenn viljum eigum […]

84 kusu utan kjörfundar í Eyjum

Utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna kosninga til stjórnlagaþings er nú lokið hjá sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum. Þátttakan hefur aldrei verið minni og er t.d. þrisvar sinnum minni en í þjóðaratkvæðagreiðslunni í mars sl. og nær 6 sinnum minni en í síðustu alþingiskosningum. (meira…)

Skiptir Eyjarnar miklu máli

Stjórnarskrá Íslands er góð og hefur staðist tím­ans tönn vel. Ég býð mig fram til stjórnlaga­þings til þess að standa vörð um góða stjórn­ar­skrá og að passa að henni verði ekki breytt í flýti eða reiði. Stjórnarskráin er vissulega eitt mikilvægasta plagg okkar Íslend­inga, um það verður varla deilt. Sumar af breytingartillögunum sem um er […]

Handagangur í öskjunni í Kiwanis

Það var handgangur í öskjunni í Kiwanishúsinu við Strandveg í gærkvöldi, í orðsins fyllstu merkingu en þá komu um það bil 140 manns saman og pökkuðu sælgæti í öskju. Kiwanisfélagar ganga svo í hús um helgina og selja öskjurnar en allur ágóði sölunnar rennur til góðgerðamála. Um 140 manns aðstoðuðu við pökkunina, félagar í Kiwanis, […]

Er 3612 fyrir þig?

Á laugardag­inn fer fram kosn­ing á stjórn­lagaþing hið fyrsta í sögu lýð­­veldis­ins. Hlut­­verk stjórnlagaþings er að endurskoða stjórnarskrá lýð­veldisins. Und­irritaður er í framboði ásamt fjöldanum öllum af öðru fólki. Þarna gefst okkur öllum tæki­færi til þess að kjósa þá einstaklinga sem okkur þykja álitlegastir til verksins. Víst er að mörgum féllust hendur við að sjá […]

Eyverjar bjóða í bíó á laugardag

Eyverjar ætla breyta út af hefðinni næsta laugardag, 27 nóv en í stað hefðbundins laugardagsfundar ætlum við að hafa kvikmyndasýningu. Að venju hefst fundurinn kl:11:00 og í boði verður heit súpa og brauð fyrir svanga. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.