FR�?TTIR koma út á fimmtudaginn

FRÉTTIR koma út á fimmtudaginn, 2. desember: Að þessu sinni fylgir blaðinu 24 síðna jólagjafablað. þar hægt er að finna allt milli himins og jarðar til jólagjafa, auk þess sem tekinn er púlsinn á jólastemmningu hjá fólki, könnuð nýjasta línan í hárgreiðslu og förðun og ýmislegt fleira skemmtilegt. (meira…)
Takk fyrir stuðninginn!

Nú þegar úrslit liggja loks fyrir er ljóst hverjir koma til með að sitja á stjórnlagaþinginu. Mig langar í örfáum orðum að þakka öllum þeim sem tóku þátt í kosningunum á laugardaginn fyrir þeirra framlag til þessa mikilvæga verkefnis. Tækifærið til þess að taka þátt í að móta stjórnskipanina var um helgina og allir þeir […]
Enginn Eyjamaður á stjórnlagaþing

Enginn Eyjamaður náði kjöri í kosningum til stjórnlagaþings. Listi 25 einstaklinga var kynntur á fundi í andyri Laugardalshallarinnar. Þessi niðurstaða kemur varla mjög á óvart enda var kjörsókn í Vestmannaeyjum mjög léleg eða aðeins 26.8%. Í það minnsta níu Eyjamenn, eða einstaklingar sem eru tengd Eyjunum voru í framboði. Þó má finna á stjórnlagaþingi einn […]
Heimildarmyndin Gleði, tár og titlar að koma út

Nú er að líta dagsins ljós heimildarmyndin „Gleði, tár og titlar“ um meistaralið ÍBV í knattspyrnu árin 1997 og 1998. Myndin er unnin af Sighvati Jónssyni Eyjamanni og fjölmiðlamanni og er um 2 klst. að lengd. Gleði, tár og titlar áranna 1997 og 1998 er efniviður myndarinnar. Hún er gerð að frumkvæði þeirra er mynduðu […]
Sundlaugin lokuð í dag

Vegna bilunar í sundlauginni í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja, verður sundlaugin lokuð í dag, þriðjudag og hugsanlega líka á morgun. Eingöngu sundlaugin sjálf verður lokuð en opið verður í pottana á útisvæðinu. (meira…)
Jólaaðventukvöld ÁtVR á morgun

ÁtVR heldur sitt árlega Eyja-aðventukvöld miðvikudaginn 1. desember Kl. 20.00 í Seljakirkju Hólmaseli 40, Reykjavík, inngangur frá Rangárseli. Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson leiðir samveruna. Æskulýðsfélag Seljakirkju flytur atriði. Jólahugvekja. Inga Jóna Hilmisdóttir og Sigurjón Guðmundsson lesa stuttar jólasögur. Sönghópur ÁtVR syngur jólalög og sálma. Hafsteinn G. Guðfinnsson stjórnar. Jólahugvekja. (meira…)
Eyjamenn komnir áfram í �?tsvari

Á föstudaginn kom í ljós að lið Vestmannaeyja komst áfram í 2. umferð spurningakeppninnar Útsvar í Ríkissjónvarpinu. Vestmannaeyjar töpuðu reyndar viðureign sinni gegn Reykjavík 90:77 en komast áfram sem eitt af fjórum stigahæstu tapliðunum. Reyndar er enn ein viðureign eftir í 1. umferð en lið Eyjamanna situr í þriðja sæti yfir stigahæstu tapliðin og getur […]
Ljósmyndasýning úr gosinu á Hvolsvelli

Ljósmyndasýning Ragnars TH Sigurðssonar frá gosinu í Eyjafjallajökli sem var opnuð þann 28. nóvember síðastliðinn í Eldstó Café og Húsi leirkerasmiðsins á Hvolsvelli, stendur enn yfir. Sýningin er sama ljósmyndasýning, sem fer upp hjá Rolls Royce í London á næstunni. (meira…)