Áfram siglt upp í Landeyjahöfn

Herjólfur mun sigla upp í Landeyjahöfn nú síðdegis en brottför er klukkan 18:00 frá Eyjum og 20:30 frá Landeyjahöfn. Spáð er vaxandi vindi þegar líður á nóttina og gæti vindur náð allt að 18 metra vindhraða á sekúndu um miðjan dag á morgun. Þrátt fyrir það er áætlað að sigla fyrstu ferð morgundagsins samkvæmt áætlun […]

Til umhugsunar vegna nafngiftar

Í vikublaðinu Fréttum er greint frá því að Fjölskyldu og tómstundaráð hafi veitt ÍBV-íþróttafélagi leyfi til að selja nafn á hið nýja glæsilega fjölnota íþróttahús, sem senn verður tekið í notkun. Hvers vegna? . ÍBV-íþróttafélag rekur gríðarlega umfangsmikið og fjárfrekt barna- og unglingastarf. Og hefur á síðustu árum lagt metnað sinn í að bæta enn […]

Tvísýnt með síðustu ferð Herjólfs í dag

Ölduhæð við Landeyjahöfn er nú 1,6 metri og fer vaxandi þegar líður á daginn. Skipstjóri Herjólfs telur því að tvísýnt sé hvort skipið sigli í Landeyjahöfn síðustu ferðina í dag kl. 18.00. Er þeim farþegum sem nauðsynlega þurfa að komast til fastalandsins ráðlagt að nota ferðina kl. 15.00 sé þeim það mögulegt. (meira…)

Ungt Eyjafólk á landsliðsæfingar

Sigurður Grétar Benónýsson er efnilegur íþróttamaður, það er óumdeilt. Hann hefur nú verið valinn á landsliðsæfingar bæði í knattspyrnu og körfubolta. Í fótboltanum hefur hann verið valinn á æfingar með U-16 ára landsliðinu ásamt Kristni Skæringi Sigurjónssyni en auk þeirra var Tanja Rut Jónsdóttir verið valin á æfingar hjá U-16 kvennalandsliðinu. Þá var hann valinn […]

Upplýsist líkast til aldrei

Laugardagskvöldið þann 9. des­ember árið 2000 og aðfaranótt sunnu­dagsins 10. des. mun seint líða úr minni þeirra sem fylgdust með þegar hús Ísfélagsins við Friðarhöfn nær eyðilagðist í einhverjum mesta eldsvoða sem orðið hefur í Vestmannaeyjum. Í dag eru nákvæm­­lega tíu ár frá þessum hörmu­lega atburði sem átti eftir að setja mark sitt á atvinnulífið […]

Gekk berserksgang á gistiheimili

Lögreglan í Vestmannaeyjum var kölluð að gistiheimili í bænum um þrjúleytið í nótt. Þar hafði gestur á heimilinu gengið berserksgang og brotið innanstokksmuni eins og sjónvarp og rúm. Maðurinn, sem stundar vinnu í Eyjum, var færður í fangaklefa og látinn sofa úr sér ölvímuna. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.