Hressir krakkar skemmtu sér vel

Árshátíð unglingadeildar Grunnskóla Vestmannaeyja var haldin í Höllinni á fimmtudagskvöld fyrir viku. Krakkarnir höfðu greinilega lagt mikla vinnu í bæði skemmtiatriði og skreytingu á salnum en árshátíðin var haldin í Las Vegas stíl, þar sem teningar, spil og glamúr var allsráðandi. Árshátíðin var lokahnykkur Smiðjudaga sem hafa verið í gangi í Barnaskólanum en á árshátíðina […]
Siglt til �?orlákshafnar seinni partinn

Ekki verða fleiri ferðir farnar til Landeyjahafnar í dag en Herjólfur sigldi þangað tvívegis í morgun. Núna klukkan 15:00 mun Herjólfur hins vegar sigla til Þorlákshafnar og svo aftur til Eyja klukkan 19:00. Veðurspá næstu daga er hins vegar hagstæð og líklegt að siglingar í Landeyjahöfn hefjist að nýju í fyrramálið. (meira…)
Staða Vestmannaeyjabæjar er sterk

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 9. desember í samræmi við reglur um bókhald sveitarfélaga og hefðir sem myndast hafa hjá Vestmannaeyjabæ. Síðari umræða fer fram 16. desember. (meira…)
Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti leyfi til ÍBV íþróttafélags að selja nafn á húsið

Miklar umræður urðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gærkvöldi um nafn á fjölnota íþróttahúsið sem senn verður tekið í notkun. Í upphafi umræðunnar gerði Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs grein fyrir afstöðu sinni til málsins. Hún væri algerlega á móti því að gefa ÍBV íþróttafélagi leyfi til að selja fyrirtæki nafn á húsið. Vestmannaeyjabær væri eigandi […]
Steypan kom úr Eyjum

„Það bilaði steypustöð sem er hér í Vík. Selfoss er næstur en við vorum í rauninni fljótari að fá steypuna frá Eyjum,“ sagði Guðmundur Jón Viðarsson frá Skálakoti undir Eyjafjöllum. Hann var í gær að steypa í Vík í Mýrdal. Verið er að breyta gömlu húsi til að stækka Hótel Lunda um 12 herbergi. Guðmundur […]
Tveggja ára hugmynd orðin að veruleika

Jól í mínu hjarta er nýr geisladiskur sem Silja Elsabet Brynjarsdóttir er að gefa út. Silja syngur tólf þekkt jólalög á diskinum og allir sem koma að undirleik og plötuumslagi eru frá Eyjum. Árni Óli Ólafsson stjórnaði upptökum sem fóru fram í Island Studio og því má segja að framtakið sé að öllu leyti frá […]