Móður og barni heilsast vel

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti móður og barn, sem fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann, til Vestmannaeyja í gærkvöld. Læknir í Eyjum segir að slæmt veður hafi ráðið miklu um að þyrla var kölluð út, en sjúkraflugi Eyjamanna er sinnt frá Akureyri. (meira…)
Ný gönguleið hjá jólasveinunum

Í kvöld klukkan 19:00 verður blysför frá Hásteini og verður gengið fylktu liði inn á malarvöll. Nú hefur hins vegar verið ákveðið, í fullu samráði við jólasveinana að sjálfsögðu, að breyta örlítið gönguleiðinni á þann veg að í stað þess að beygja af Illugagötu og inn á Kirkjuveg, verður gengið áfram upp Illugagötuna og beygt […]
Gjörbreytir aðstöðu frjálsra og fótboltans

Í dag klukkan 16:00 verður nýja íþróttahúsið við Hásteinsvöll vígt við hátíðlega athöfn. Húsið gjörbyltir æfingaaðstöðu frjálsra íþrótta og knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum en báðar íþróttagreinarnar hafa búið við mjög bág skilyrði til æfinga yfir vetrarmánuðina. Reyndar hefur æfingaaðstaða frjálsra íþrótta ekki verið til staðar að neinu marki í Vestmannaeyjum í nokkra áratugi en nú loksins […]