Tjón óverulegt í rokinu

Björgunarsveitarmenn hafa verið að störfum í Vestmannaeyjum vegna stormsins sem nú geisar á Suðurlandi. Vindstyrkur er 22 metrar á sekúndu í bænum en 35 metrar á Stórhöfða. Fimm manna hópur björgunarsveitarmanna hefur verið að störfum í Vestmannaeyjum frá því í morgun. Í flestum tilfellum hefur þurft að festa niður þök. Hluti af þaki fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins […]
Blak endurvakið í Eyjum

Ákveðið er að 36. öldungamót Blaksambands Íslands verði haldið í Vestmanneyjum dagana 5. til 7. maí í vor. Af því tilefni hefur verið ákveðið að endurvekja blak í Vestmannaeyjum með þátttöku í mótinu í huga. Gömul brýni í blakinu, Haraldur Geir Hlöðversson og Björgvin Eyjólfsson, ætla að koma fólki af stað. Verða æfingar fyrir áhugasama […]
�?fingar falla niður í dag

Vegna veðurs falla niður æfingar í dag hjá ÍBV-íþróttafélagi og hjá yngstu flokkum í körfunni. Æfingarnar falla niður hjá ÍBV-íþróttafélagi bæði í íþróttamiðstöðinni, sem og í Eimskipshöllinni og þeim tilmælum er beint til foreldra að senda ekki börn sín á æfingar ef veður er tvísýnt. (meira…)
Síðari ferð fellur einnig niður

Seinni ferð Herjólfs í dag fellur einnig niður en áætlað var að sigla tvívegis til Þorlákshafnar. Skipið sigldi hins vegar ekki í morgun enda aftakaveður í Eyjum. Heldur hefur bætt í vind eftir því sem liðið hefur á daginn en mesta vindhviða á Stórhöfða hefur farið upp í 49 metra á sekúndu. Í tilkynningu frá […]
�?yrla sem sótti fyrirbura of dýr
Sjúkratryggingar Íslands kanna hvort Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum hafi hugsanlega ekki farið eftir samningi um sjúkraflug þegar þyrla var send til Vestmannaeyja til að sækja fyrirbura. Lögfræðingur hjá sjúkratryggingum telur illa farið með fé skattborgara að greiða þrefalt meira fyrir þyrlu en hefðbundið sjúkraflug sé þess ekki þörf. (meira…)
Eins gott að hafa sterka vörn

Vestmannaeyjabær eins og sjálfsagt flest sveitarfélög, ekki hvað síst á landsbyggðinni heyja mikla varnarbaráttu fyrir sinni tilveru þessa mánuðina. Sparnaðaráform ríkisivaldsins knýja þar fast dyra og ýmis þjónusta, sem fram að þessu hefur verið talin sjálfsögð er allt í einu komin í uppnám. (meira…)
Herjólfur siglir ekki vegna veðurs

Ferð Herjólfs sem fyrirhuguð var til Þorlákshafnar í morgun, var felld niður vegna veðurs. Í fréttatilkynningu frá Eimskipum, rekstraraðila Herjólfs, segir að búast megi við að sama eigi við um ferðina síðdegis. Ákvörðun um seinni ferðina verður tekin um hádegi. (meira…)