Herjólfur siglir í �?orlákshöfn í fyrramálið

Herjólfur mun sigla fyrstu ferð til Þorlákshafnar á morgun, sunnudag. Farið verður frá Eyjum klukkan 07:30 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:15. (meira…)
�?ruggur sigur hjá Eyjamönnum

Karlalið ÍBV í fótbolta mætti í dag Stjörnunni í fyrsta leik sínum í Fótbolti.net-mótinu sem hófst um helgina. Eyjamenn höfðu betur, unnu 0:3 en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Andri Ólafsson, Tryggvi Guðmundsson og Kjartan Guðjónsson skoruðu mörk ÍBV en ÍBV var 0:2 yfir í hálfleik. (meira…)
�?skudrullan þrifin

Eins og sagt var frá í gær notuðu Eyjamenn tækifærið þegar veðrinu slotaði til að þrífa hús og bíla. Útlitið var heldur svart í Eyjum í vikunni enda hafði ösku, sandi og seltu rignt yfir Vestmannaeyjabæ og úr verður heldur hvimleiður kokteill. Sem betur fer gerist það ekki oft að Eyjamenn fái yfir sig annað […]
Báðar ferðir til �?orlákshafnar í dag

Herjólfur sigldi fyrstu ferð sína í dag til Þorlákshafnar og er nú á leið aftur til Eyja. Síðari ferð skipsins verður einnig farin til Þorlákshafnar. Farið verður frá Vestmannaeyjum klukkan 15:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 19:00. (meira…)
Leik ÍBV frestað til morguns

Í dag átti kvennalið ÍBV að leika heimaleik gegn Fylki í N1 deild kvenna og átti leikurinn að hefjast klukkan 13:00. Leikurinn hefur hins vegar verið færður til morguns þar sem ekki er siglt upp í Landeyjahöfn í dag laugardag. (meira…)