Rólegt nema í rokinu

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Þó var töluvert að gera vegna þess óveðurs sem gekk yfir eyjarnar í síðustu viku og þó nokkuð um foktilkynningar til lögreglu, eða alls sjö á einum sólahring. (meira…)

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar næstu daga.

Vegna umræðu um niðurfellingu ferða Herjólfs í Landeyjahöfn síðustu daga vill Eimskip koma eftirfarandi á framfæri: Lóðsinn frá Vestmanneyjum framkvæmdi dýptarmælingar í Landeyjahöfn síðastliðinn föstudag og í framhaldi af því voru gerðar dýptarmælingar með mælingabát Siglingastofnunar á laugardaginn. (meira…)

�?fært um Landeyjahöfn á næstunni

Mikil ölduhæð við suðurströnd landsins næstu daga mun hamla siglingum um Landeyjahöfn. Í frétt á vef Siglingastofnunar kemur fram að aldan hafi snúist í suðvestanátt. Samkvæmt dýptarmælingu á laugardag er farið að grynnka utan við hafnarmynnið vestanmegin, einkum vestan við innsiglingarrennuna. (meira…)

Finnskar stúlkur í heimsókn á ritstjórn Eyjafrétta

Á ritstjórn Eyjafrétta hafa í morgun verið fjórar finnskar stúlkur ásamt kennara sínum. Hópurinn kom til Eyja í gærkvöldi með Herjólfi og mun dvelja hér út vikuna en koma þeirra er hluti af samstarfsverkefni skólans í Salo í Finnlandi og í Vestmannaeyjum. Í voru munu svo stúlkur frá Eyjum halda til Finnlands til að endurgjalda […]

Formaður framtíðarnefndar Sjálfstæðisflokksins fundar í Eyjum í kvöld

Formaður Framtíðarnefndar Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson heldur nú í fundarherferð um landið. Á fundunum mun Kristján Þór kynna starf Framtíðarnefndarinnar og hvetja flokksfélög Sjálfstæðisflokksins til þátttöku í störfum nefndarinnar. Framtíðarnefndin mun skila miðstjórn flokksins skýrslu og tillögur. (meira…)

�?ú mátt reyna á þig bróðir og skara fram úr

Við, félagarnir í bræðrafélaginu Vinir Ketils Bónda, höfum tekið eftir því að bróðir okkar Kári Kristján hefur lítið sem ekkert reynt á sig í fyrstu leikjum Íslands á HM í Svíþjóð. Það kemur okkur gríðarlega á óvart, enda Kári þekktur baráttuhundur sem gefst ekki upp þó á móti blási. Eftir mikla yfirlegu okkar bræða þá […]

Gunnar Heiðar til reynslu hjá Hibernian

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Esbjerg í Danmörku, mun dvelja við æfingar hjá skoska úrvalsdeildarliðinu Hibernian í þessari viku en frá þessu er greint á heimasíðu danska liðsins. „Gunnari gefst nú tækifæri á að reyna fyrir sér í Skotlandi og við viljum ekki standa í vegi fyrir því, sagði Niels Erik Söndergaard, yfirmaður íþróttamála hjá Esbjerg. […]

Áfram siglt í �?orlákshöfn

Herjólfur siglir áfram í Þorlákshöfn í dag, mánudag en brottför er klukkan 7:30 frá Vestmannaeyjum og 11:15 frá Þorlákshöfn. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.