Dolli og Doddi ÍBV fundnir

Nú er komið í ljós hverjir eru Dolli og Doddi karlaliðs ÍBV. Eða kannski frekar Steini og Olli. Félagarnir Davíð Þór Óskarsson og Sindri Ólafsson sáu sér leik á borði þegar blaðamaður Eyjafrétta tók viðtal við Guðbjörgu Guðmannsdóttur. Í myndabandinu sem fylgir fréttinni má sjá hvernig þeir félagar hlaupa í bakgrunni aftan að Guðbjörgu, sem […]

Lélegt og andlaust

Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV í handbolta lék sinn fyrsta leik í vetur eftir að hafa glímt við meiðsli í eina níu mánuði. Sigurður fór rólega af stað í leiknum en skoraði svo tvö afar mikilvæg mörk í síðari hálfleik og komst í heildina ágætlega frá sínu. Hann viðurkenndi hins vegar að leikur ÍBV hefði verið […]

Guðbjörg telur að ÍBV geti náð fjórða sætinu

Guðbjörg Guðmannsdóttir er reynslumesti leikmaður kvennaliðs ÍBV í handbolta. Hún hefur farið mikinn í vetur, alla jafna verið markahæst í leikjum liðsins og hefur stundum dregið vagninn hjá liðinu. Guðbjörg segir að ÍBV eigi alla möguleika á að ná fjórða sætinu og um leið að komast í úrslitakeppni Íslandsmótsins. (meira…)

Sjálfstæðisflokkurinn með 43% fylgi í Suðurkjördæmi

Í nýlegum Þjóðarpúlsi Gallup um fylgi stjórnmálaflokkanna, kemur fram að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er 43%, en á landsvísu mælist hann með 34% fylgi. Enginn flokkur mælist með jafn mikið fylgi í einu kjördæmi og Sjálfstæðisflokkurinn gerir í Suðurkjördæmi. Framsóknarflokkurinn mælist með 13% fylgi á landsvísu. Flokkurinn stendur sig þó betur í Suðurkjördæmi en þar […]

Eyjamenn í basli með botnliðið

Eyjamenn sýndi líklega flestar sínar verstu hliðar í leik sínum gegn botnliði Fjölnis í dag þegar liðin áttust við í Eyjum í 1. deildinni. Leikmenn ÍBV virtust á löngum köflum í leiknum vera hálf áhugalausir, alla baráttu vantaði í liðið og leikur þess var eftir því. Fjölnismenn, sem mættu eingöngu með níu leikmenn til Eyja, […]

ÍBV mætir Keflavík í úrslitum

Knattspyrnulið ÍBV lagði FH að velli 3:2 í dag í síðustu umferð riðlakeppninnar í móti Fótbolta.net. ÍBV vann alla þrjá leiki sína í riðlinum, gegn ÍA, Stjörnunni og FH og er komið í úrslitaleik keppninnar sem fer fram laugardaginn 5. febrúar. FH-ingar komust í 0:2 í leiknum í dag en Eyjamenn tóku heldur betur við […]

�?ruggur sigur hjá stelpunum

Leikmenn kvennaliðs ÍBV sinntu í dag skylduverkunum þegar þær lögðu ÍR að velli í Eyjum. Lokatölur urðu 30:21 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:12. Þar með heldur ÍBV áfram að þjarma að Fylki, sem er í fjórða sæti deildarinnar en fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Nú munar aðeins einu stigi á […]

Kiwanismenn bestir í Eyjum

Í gærkvöld lauk Olísmótinu í snóker en í mótinu keppa sveitir úr Kiwanis, Oddfellow og Akóges. Hver sveit er skipuð sex mönnum og leika allir við alla. Sú sveit sem vinnur flesta vinninga stendur uppi sem sigurvegari og í ár, eins og svo oft áður, urðu Kiwanismenn hlutskarpastir í sveitakeppninni og unnu með 48 vinninga, […]

Fleirum líkar vel við skólann sinn

Skýrslan Heilsa og lífskjör skólanema á Suðursvæði 2006-2010, rannsókn á vegum Rannsóknaseturs forvarna við Háskólann á Akureyri kom út seint á síðasta ári. Fréttir leituðu til Fanneyjar Ásgeirsdóttir, skólastjóra Grunnskóla Vestmanneyja, og spurðu út í helstu niðurstöður. Fanney sagði að skýrslan væri greinargóð og góð lesning fyrir alla þá sem bera velferð barna og unglinga […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.