Matt Garner með ÍBV út tímabilið

Eyjamenn tryggðu sér í dag áframhaldandi starfskrafta enska varnarmannsins Matt Garner. Garner hefur eingöngu leikið með ÍBV hér á landi, lék fyrst sumarið 2004 frá enska félaginu Crewe með liðinu og kom svo aftur til ÍBV sumarið 2006 og hefur leikið með liðinu síðan. Garner leikur öllu jöfnu í stöðu vinstri bakvarðar og þykir einn […]

Skandia lagt af stað áleiðis til Eyja

Dæluskipið Skandia er lagt af stað áleiðis til Vestmannaeyja frá Danmörku. Skipið fór í skoðun í gær en ekki er gott siglingaveður framundan og því viðbúið að skipið verði lengur á leiðinni en áætlað var. Í góðu veðri er þetta um fjögurra sólahringa sigling. Hins vegar er áætlað að það taki aðeins tvo daga að […]

100 fermetrar af þaki Vinnslustöðvarinnar flettist upp

Um 100 fermetra hluti af þaki Vinnslustöðvarinnar flettist upp í morgun en um er að ræða syðsta hluta hússins. Plöturnar fuku ekki af húsinu en fljótlega dreif að fólk til að fergja þær niður aftur. Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út til aðstoðar en auk þeirra voru þarna smiðir sem voru að vinna í nálægum byggingum […]

Björgunarfélagið kallað út

Björgunarfélag Vestmannaeyja var nú rétt í þessu kallað út en talsverður vindur er nú í Eyjum, 27 metra meðalvindur en hviður á Stórhöfða fara upp í 34 metra á sekúndu. Björgunarfélagið hefur verið kallað að húsakynnum Vinnslustöðvarinnar við Strandveg en samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu eru þakplötur að fjúka af húsinu. (meira…)

Glæsilegur árangur hjá Eyjakrökkunum

Um síðustu helgi fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum en mótið var haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Ungmennafélagið Óðinn sendi nokkra keppendur til leiks og náðu þau mjög góðum árangri. Ævar Örn Kristinsson vann tvenn bronsverðlaun, í 60 m. hlaupi og þrístökki og Rúnar Kristinn Óðinsson vann bronsverðlaun í hástökki. Í mótinu keppa sterkasta […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.