Umhverfisráðherra vill loka Sorpu

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, vill láta loka sorpbrennslustöðvunum í Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarklaustri. Hún segir þó skorta lagaheimild til að fyrirskipa slíka lokun en þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Því verður Sorpu ekki lokað með valdi þó svo að díoxínmengun frá stöðinni sé meiri en evrópskar reglur segja til um. (meira…)
Minni vinna og færri skip

Von er á tillögum sjávarútvegsráðherra á næstu vikum um breytta stjórnun fiskveiða. Ekkert hefur lekið út um innihaldið nema að tekið verði mið af svokallaðri sáttaleið. Eftir því sem næst verður komist er ekki spurning hvort tekið verður af aflamarksskipum heldur hve há prósentan verður. Í dag er svokallaður ráðherrapottur um sex prósent en talið […]
Fá ekki meiri hækkanir en aðrir

„Við munum ekki ganga að kröfum starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjunum. Þeir munu ekki fá aðrar launahækkanir en aðrir hópar semja um,“ sagði Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins á opnum fundi SA um atvinnumál og stöðu kjarasamninga í morgun. (meira…)