Eyjasveitin S�?R í öðru sæti Músíktilrauna

Í gærkvöldi fór fram úrslitakvöld Músíktilrauna en Eyjasveitin SÚR var meðal þeirra sveita sem vann sér rétt til að taka þátt í úrslitunum. Músíktilraunir fara þannig fram að um 40 sveitir koma fram í undanúrslitum dagana 25.-28. mars síðastliðinn og eru 12 sveitir valdar þaðan og inn í úrslitin. SÚR gerði sér lítið fyrir og […]
ÍBV áfram í 2. deild

Körfuknattleikslið ÍBV tapaði fyrir ÍA í átta liða úrslitum í gær. Liðin áttust við á Akranesi en aðeins er leikin ein umferð í úrslitakeppni 2. deildar. Eyjamenn klúðruðu heimaleikjaréttinum í síðasta heimaleik vetrarins gegn Reyni Sandgerði á dögunum þegar þeir töpuðu í leik sem þeir áttu að vinna. Fyrir vikið þurftu Eyjamenn að fara upp […]
Ellefu mörk í naumu tapi gegn Fylki

Í gær léku kvennalið ÍBV og Fylkir í knattspyrnu æfingaleik í Egilshöllinni í Reykjavík. Mörkin urðu hvorki fleiri né færri en ellefu talsins en að lokum voru það Fylkisstúlkur sem höfðu betur 6:5 í hreint mögnuðum markaleik. Staðan í hálfleik var 3:2 fyrir Fylki en í stöðunni 5:5 bjargaði markvörður Fylkisstúlkna meistaralega í tvígang áður […]
Berglind skoraði gegn Tyrkjum og Sóley gegn Wales

Íslenska U-19 ára landsliðið í fótbolta byrjaði milliriðil sinn á því að tapa fyrir Tyrkjum 3-1 eftir að Berglind Þorvaldsdóttir hafði komið Ísland yfir með glæsilegu skallamarki. Í dag léku stúlkurnar gegn Wales og sigruðu 2-0. Sóley Guðmundsdóttir skoraði fyrra mark Íslands í leiknum. Stúlkurnar eiga einn leik eftir, gegn Þjóðverjum og þurfa sigur til […]