Landeyjahöfn aftur opin

Landeyjahöfn var opnuð aftur í gær, miðvikudag, í fyrsta sinn í sléttar 16 vikur. Síðast sigldi Herjólfur í Landeyjahöfn miðvikudaginn 12. janúar. Þótt ekki sé búið að ná fullri dýpt í og við höfnina er þungu fargi létt af Eyjamönnum enda hafa samgöngur eftir áramót færst áratugi aftur í tímann með tilheyrandi afleiðingum. Samkvæmt […]
Áfram siglt í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur mun sigla áfram í Landeyjahöfn á morgun fimmtudag. Siglt verður með tilliti til sjávarfalla og verða farnar þrjár ferðir. Fyrsta ferð er frá Eyjum 7:30 og frá Landeyjahöfn 8:45. Næsta ferð er svo 17:00 frá Eyjum og 18:30 frá Landeyjahöfn. Síðasta ferð dagsins er svo frá Eyjum klukkan 20:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 21:30. […]
Perlan á leið frá Landeyjahöfn

Dýpkunarskipið Perlan er á leið frá Landeyjahöfn en samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun gat skipið ekki athafnað sig sem skildi í hafnarmynninu og því talið ástæðulaust að hafa skipið á staðnum. Skandia mun hins vegar halda áfram en dýpkun í hafnarmynninu gengur hægt enda aðstæður erfiðar, vindasamt og sterkur straumur við höfnina. (meira…)
Dælurör brotnaði í Landeyjahöfn

Fjögurra klukkustunda töf varð á dýpkun Landeyjahafnar í nótt eftir að dælurör brotnaði. Dýpkað er við erfiðar aðstæður í mynni hafnarinnar en hún verður opnuð í dag eftir fjögurra mánaða lokun. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa þrýst á opnun Landeyjahafnar og bent á hagsmuni fyrirtækja í verslun og þjónustu. Um þúsund manns áttu bókað far til […]