Lögregla hafði afskipti af samkomum ungmenna

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og þurfti lögreglan að hafa afskipti af nokkrum ungmennum vegna samkomu við Hrafnakletta um liðna helgi, en það er orðin árlegur viðburður hjá þeim sem eru að ljúka grunnskóla að hittast þar eftir próf. Ástandið þar var þokkalegt en nokkur ölvun var á […]
Forsala á Eyjakvöld ÍBV hófst í dag

Laugardagskvöldið 21. maí verður haldið ÍBV-kvöld knattspyrnudeildar og stuðningsmannaklúbbs iBV á fastalandinu og sannkallað Eyjakvöld. Boðið verður upp á þriggja rétta dýrindis máltíð og munu hinir ástsælu matreiðslumenn Grímur „Kokkur“ Gíslason og hinn eini sanni Hörður Adolfsson á Skútanum sjá um töfrana í eldhúsinu ásamt matreiðslumönnum hússins. (meira…)
Bæjar- og útvarpsstjórar á vellinum

Tíðindamaður vefsins Fótbolti.net heimsótti Hásteinsvöllinn á sunnudaginn þegar Eyjamenn tóku á móti Breiðabliki. Hann athugaði stemmninguna í kringum völlinn, bæði í stúkunni og á Hólnum, og reyndar víðar. Meðal annars ræddi hann við stjórana tvo, útvarpsstjórann Pál Magnússon og bæjarstjórann Elliða Vignisson. (meira…)
14 taka þátt í Sumarstúlkukeppninni 2011

Sumarstúlkukeppnin 2011 verður haldin 28. maí næstkomandi í Höllinni. Alls taka fjórtán Eyjastúlkur þátt í keppninni í ár, allar fæddar 1993 en Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir er sem fyrr framkvæmdastjóri keppninnar sem nú er haldin í 24. sinn. Stúlkurnar fjórtán má sjá á myndinni hér að ofan en sérstök kynning á þeim verður í næsta tölublaði […]
�?tgerðarmenn með áhyggjur af framkomu LÍ�?

Eygló Harðadóttir, Framsóknarflokki, segir það sitt mat eftir samtöl við útgerðarmenn í sínu kjördæmi að margir þeirra séu lítt hrifnir af með hvaða hætti Landssamband íslenskra útvegsmanna fer fyrir skjöldu varðandi nýtt kvótafrumvarp. (meira…)
Minntust björgunar 1954

Vorið 1954 bjargaði togarinn Hull City átta manns af Vestmannaeyjabátnum Glað VE 270 sem hafði sokkið fyrir sólarhring í slæmu veðri. Skipsbrotsmennirnir eru allir látnir en hópur ættingja fór nýlega til Grimsby til að hitta James Findlater, sem er 82 ára og var í áhöfn togarans, sá eini sem lifir. Voru honum færðar þakkir og […]