ÍBV í mikilli lægð

Svo virðist sem kvennalið ÍBV sé komið ákveðna lægð. Liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fjórum í deildinni, gert eitt jafntefli en tapað tveimur. Hugsanlega eru kröfurnar orðnar meiri eftir magnaða byrjun á tímabilinu en það er ljóst að ÍBV á að geta mun betur en það hefur sýnt í síðustu leikjum, sérstaklega […]
Stórsveitin SAGA í Vodafonehöllinni 4. nóvember

Aðdáendur SÖGU ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum þar sem sveitin mun heimsækja landann í haust. Þetta eru „best of“ tónleikar hjá þeim og því þeir munu flytja öll sín bestu lög á mögnuðum tónleikum í Vodafonehöllinni föstudagskvöldið 4. nóvember. Miðasala á tónleikana hefst þann 6. júlí, eða á morgun klukkan 10:00 á www.midi.is. (meira…)
Eitt tilboð barst í rekstur skipalyftunnar en því var hafnað

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar í gærdag kom fram að eitt tilboð barst í rekstur á upptökumannvirki hafnarinnar, sem senn verður tilbúið eftir tjón sem þar varð fyrir nokkrum árum. Reksturinn á upptökumannvirkinu var boðinn út á EES svæðinu og sóttu fimm aðilar útboðsgögn en eingöngu eitt tilboð barst og var það frá Skipalyftunni […]
Stelpurnar sækja Fylki heim í dag

Kvennalið ÍBV sækir Fylki heim í dag í Íslandsmótinu en leikur liðanna hefst klukkan 18:00 á Fylkisvellinum. Eyjastúlkur hafa aðeins gefið eftir í undanförnum leikjum eftir frábæra byrjun á tímabilinu en í síðustu fjórum leikjum hefur ÍBV tapað tveimur, gert eitt jafntefli en unnið einn. Síðast tapaði liðið gegn Aftureldingu í bikarnum og féll þar […]
Landeyjahöfn hugsanlega lokuð næstkomandi vetur

Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um vandræði Landeyjahafnar og því velt upp að hugsanlega verði höfninni lokað næsta vetur. Blaðið fær reyndar enga staðfestingu á því, frekar en aðrir fjölmiðlar sem hafa fjallað um málið en Guðmundur Nikullásson, framkvæmdastjóri hjá Eimskips staðfestir í umfjölluninni að lokun hafnarinnar hafi verið rædd í samráðshópi um Landeyjahöfn. […]