Heimir útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu

Fyrr í sumar bættist enn í hóp íslenskra þjálfara sem hlotið hafa UEFA Pro þjálfaragráðu frá erlendu knattspyrnusambandi þegar Eyjapeyjinn Heimir Hallgrímsson lauk námi sínu hjá enska knattspyrnusambandinu. Heimir er fimmti Íslendingurinn sem útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu frá Enska knattspyrnusambandinu. Hinir eru Guðjón Þórðarson, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Willum Þór Þórsson og Þorvaldur Örlygsson. (meira…)

Komið í veg fyrir að Eyjamenn geti veitt annarsstaðar

Georg Eiður Arnarson, lundaveiðimaður skrifar harðorða grein á bloggsíðu sinni þar sem segir vísindamanninn dr. Erp Snæ Hansen vinna gegn lundaveiðimönnum í Eyjum. Georg segist hafa fengið það staðfest að Erpur reyni að hindra það að lundaveiðimenn frá Eyjum fái að veiða lunda annarsstaðar á landinu. Auk þess segir Georg að ákvörðunin um algjört lundaveiðibann […]

En fáum við þá Herjólf þegar Baldur þarf að fara slipp

Þegar Herjólfur fer í slipp í byrjun september, mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa hann af og halda uppi siglingum milli lands og Eyja. Margir Vestfirðingar eru hinsvegar ekki mjög ánægðir með að missa Baldur eins og sjá má á þessu greinarkorni sem birtist á vefnum bb.is. Segja þeir furðulegt að leggja eigi ferðaþjónustu á suðurfjörðum Vestfjarða […]

Fíflalús gerir íbúum lífið leitt

Fíflalús er nú áberandi í húsgörðum í Eyjum og gerir garð­eigendum og íbúunum lífið leitt. Á vef Náttúrufræðistofu Íslands kemur fram að fíflalús sé nýlegur landnemi á Íslandi. Elstu sýni eru frá síðsumrinu 2007 en hún var þó farin að láta á sér bera einhverjum sumrum fyrr. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.