Yfirlýsing vegna hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf.

Ráðamenn meirihluta eignarhalds í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum (VSV) felldu í gær á aukahluthafafundi tillögu minnihlutans í eigendahópnum um að að félagið skyldi höfða skaðabótamál gegn framkvæmdastjóra og nokkrum núverandi og fyrrverandi stjórnarmönnum félagsins vegna kaupa VSV á 35% hlut í Ufsabergi-útgerð ehf. í Eyjum fyrir þremur árum. (meira…)

Talsvert um útköll hjá lögreglunni

Töluvert var meira að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið en vikuna þar á undan. Lögreglan þurfti að sinna ýmsum útköllum vegna ölvunarástands . Um var að ræða ágreining milli aðila, bæði í heimahúsum og á skemmtistöðum bæjarins. (meira…)

Starfsmaður löndunarþjónustu missti meðvitund um borð í Álsey VE

Um ellefuleytið í morgun fékk lögreglan í Vestmannaeyjum tilkynningu um vinnuslys um borð í uppsjávarskipinu Álsey VE. Starfsmaður löndunarþjónustu hafði misst meðvitund í lest skipsins vegna súrefnisskorts. Samstarfsmenn hans og skipverjar um borð í Álsey brugðust hins vegar skjótt við, komu til mannsins með súrefni og komst hann fljótlega aftur til meðvitundar. Lögregla, sjúkraflutningamenn og […]

Eru mannréttindi virt?

Í dag, klukkan 15:30 hefst fræðslu- og umræðufundur Öryrkjabandalags Íslands í Alþýðuhúsinu en yfirskrift fundarins er Fatlað fólk á tímamótum – Eru mannréttindi virt?. Um síðustu áramót var þjónusta við fatlaða færð frá ríki til sveitarfélaga og fundarröðin haldin af því tilefni. Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.