Heimsmeistaramótið í tennisgolfi fer fram í blíðskapar veðri

Heimsmeistaramótið í tennisgolfi fer nú fram í Vestmannaeyjum en keppendurnir, sem voru 27 talsins og af báðum kynjum, hófu keppni klukkan 14:00 eftir veglega setningarathöfn. Í tennisgolfi slá keppendur tennisbolta með golfkylfum en fá auk þess eitt högg á hverri braut með tennisspaða. Brautin í forkeppninni lá í gegnum Stakkagerðistún í miðbæ Vestmannaeyja en úrslitin […]
Heimsmeistaramót í Eyjum í dag

Í dag, laugardag fer fram Heimsmeistaramótið í tennisgolfi í Vestmannaeyjum. Mótið er haldið í annað sinn í Eyjum en fyrst var það haldið 2009. 25 keppendur munu etja kappi og keppa um sjálfan heimsmeistaratitilinn í tennisgolfi. Forkeppnin mun fara fram á Stakkó en úrslitakeppnin á nýjum brautum í Herjólfsdal. (meira…)