Herjólfur siglir ekki meira í dag

Vegna veðurs og ölduhæðar verður ekki sigldar fleiri ferðir í dag, fimmtudag 1. september. Gert er ráð fyrir að siglingar í fyrramálið hefjist samkvæmt áætlun, en farþegar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum í fyrramálið. (meira…)
Leiðbeiningar fyrir rafvespur

Umferðarstofa hefur nú sent út leiðbeiningar vegna rafvespa en þeim hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum undanfarið. Meðal annars kemur fram að ef rafknúin vespa kemst hraðar en 25 km./klst, þá þurfi að skrá ökutækið, tryggja það og auk þess þurfi sérstök ökuréttindi til að aka því. Þá eiga hjólin ekki að vera á götum, heldur […]
Næsta ferð Herjólfs fellur niður

Vegna veðurs og ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar falla ferðir Herjólfs klukkan 11:30 frá Eyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn niður. Þá falla einnig niður ferðir klukkan 14:30 frá Eyjum og 16:00 frá Landeyjahöfn niður. Athuga verður með útlit fyrir næstu ferðir klukkan 16:30 og uppfærð siglingaáætlun birt hér á heimasíðu Herjólfs. (meira…)
Makrílævintýrinu að ljúka

Makrílveiðum er senn að ljúka bæði hjá skipum Ísfélags og Vinnslustöðvarinnar enda eru þau búin að ná þeim veiðiheimildum í makríl sem félögin ráða yfir. Huginn VE er sömuleiðis um það bil að ljúka veiðum en hann var með 10.000 tonna veiðiheimildir í makríl. Skip Vinnslustöðvarinnar hafa sótt rúm 14.500 tonn og skip Ísfélagsins 16.700 […]