Kostnaður við byggingu Landeyjahafnar um 1400 milljónum undir áætlun

Í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn á Alþingi í gær um framkvæmdir og kostnað við Landeyjahöfn kom m.a. fram að áætlaður stofnkostnaður við framkvæmdir til ársloka 2014 er 3.400 millj. kr. (á verðlagi hvers árs) og áfallinn heildarkostnaður 1. ágúst 2011 var 3.260 millj. kr. (meira…)

�?lína svarar kallinu

Sigurjón Aðalsteinsson, áhugamaður um sjávarútvegsmál, hefur haft forgöngu um að fá Ólínu Þor­varðardóttur, varaformann sjávarút­vegsnefndar Alþingis, til Eyja til að ræða við hagsmunaaðila í sjávar­útvegi og kemur hún á þriðjudaginn. (meira…)

Hasar í Heimakletti

Veðrið lék við Eyjamenn þegar fé var smalað af Heimakletti síðustu helgi. Á milli 30 og 40 kindur voru á klettinum, að sögn Jóhanns Kristjánssonar áhugaljósmyndara. Átta manna hópur vaskra manna tók þátt í smöluninni. Að sögn Jóhanns er mikil list að smala fé á klettinum. (meira…)

�?flugt lundaball þrátt fyrir lundaleysi

Lundaballið fer fram í Höllinni þann 17. september. Álseyingar halda ballið að þessu sinni og undirbúningur hefur staðið yfir í tvö ár. Ekkert verður til sparað, lundi og svartfugl á boðstólum og humarsúpan fræga um miðnætti. Skemmtidagskrá í höndum Álseyinga svíkur engan og þó svo að nú séu liðin sjö ár frá því þeir héldu […]

Baldur siglir aukaferðir á sunnudaginn

Vegna leiks ÍBV og KR á sunnudaginn siglir Baldur þrjár aukaferðir milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja sunnudaginn 18.september. Það verður bætt við tveimur ferðum frá Vestmannaeyjum, kl.14.30 og 23:00, og einni frá Landeyjahöfn kl.16.00. Sala í þessar ferðir var opnuð nú i morgunsárið. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.