Gleymdi potti á hellunni

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út klukkan rúmlega fjögur að Ásavegi 1. Þar hafði pottur gleymst á hellu þannig að reykur fyllti einbýlishúsið, en enginn eldur kviknaði. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið, ekki er ljóst hvort skemmdir urðu á húsinu en mikill reykur var í húsinu og því ekki ólíklegt að einhverjar reykskemmdir hafi orðið. (meira…)

Bæjarráð leggst alfarið gegn 15 prósent hækkun á gjaldskrá Herjólfs

Bæjarráð leggst alfarið gegn fyrirhugaðri 15 prósent hækkun á gjaldskrá Herjólfs og hvetur Vegagerðina til að leggja höfuðáherslu á að sinna skyldu sinni hvað varðar að tryggja viðunandi þjónustu í siglingum milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Hækkunin á að taka gildi frá og með 1. nóvember næstkomandi samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar. (meira…)

Íslandsmótið í Boccia í Eyjum um helgina

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í boccia einstaklingskeppni fer fram í Vestmannaeyjum um helgina. Umsjónaraðili er íþróttafélagið Ægir í Vestmannaeyjum. Sú hefð hefur skapast að halda þessi Íslandsmót í bæjarfélögum úti á landi þar sem sem aðildarfélög ÍF starfa. Markmið er að kynna starfsemi aðildarfélaga ÍF sem hafa mjög mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna. Á þessi mót […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.