Síðari ferð morgundagsins aflýst

Síðari ferð Herjólfs á morgun, mánudag, fellur niður. Ástæðan er að þá verður unnið að varanlegri viðgerð á stýrisbúnaði og því verður að fella ferðina niður. Hugsanlega þarf einnig að fella niður fyrri ferð skipsins á þriðjudaginn en það verður tilkynnt síðar ef til þess kemur. (meira…)
Árlegt aðventukaffi

Kvenfélag Landakirkju heldur sitt árlega aðventukaffi 1. sunnudag í aðventu strax að lokinni guðsþjónustu kl.14:00. Auk þess er hlutavelta og basar. Á basarnum í ár er lögð áhersla á heimagerð jólakort, smákökur, brauð, kökubotna og heita brauðrétti. Einnig verðum við með til sölu ljóðabók með ljóðum sr. Þorsteins Lúthers og margt fleira. (meira…)